Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Holugeitungsdrottning (Vespula vulgaris), óvelkominn landnemi. © Erling Ólafsson

Týrusporðdreki - Euscorpius flavicaudis (De Geer, 1778)

Fylking: Arthropoda Flokkur: Arachnida Ættbálkur: Scorpiones Ætt: Euscorpiidae

Týrusporðdreki - Euscorpius flavicaudis

Týrusporðdreki. 35 mm. ©EÓTýrusporðdreki - Euscorpius flavicaudisTýrusporðdreki með nýfædda unga. ©EÓ

[Smellið á myndir til að stækka]

Útbreiðsla
S-Evrópa; Frakkland, Ítalía og Spánn. Barst til S-Englands á 18. öld og hefur lifað þar á nokkrum stöðum síðan í sprungum í gömlum múrsteinshúsum.

Ísland
Slæðingur fundinn í Kópavogi.

Lífshættir
Týrusporðdreki heldur sig þar sem rakt er og hlýtt, í skógum, görðum og skrúðgörðum, einnig á ökrum. Hann er á ferli allt árið og finnst mjög gjarnan í gömlum húsum og rústum, þar sem hann heldur sig í sprungum í veggjum og öðrum fylgsnum. Týrusporðdreki er felugjarn og bíður bráðar í fylgsni sínu í stað þess að leita hana uppi. Hann hremmir bráðina, t.d. skordýr, köngulær, gráloddur og jafnvel aðra sporðdreka, og deyðir með gripklónum en beitir ekki eiturstingnum. Hann er almennt ógjarn á að beita stingnum og er talinn tiltölulega meinlaus þar sem eitrið er vægt. Ofnæmisviðbrögð geta þó reynst hættuleg.

Týrusporðdreki fæðir lifandi unga eins og aðrir sporðdrekar. Móðirin ber þá með sér á bakinu í nokkra daga og gætir þeirra af umhyggju. Hann nær nokkurra ára aldri.

Almennt
Tveir týrusporðdrekar bárust fyrir slysni til landsins með farangri íslenskra ferðamanna sem höfðu dvalið í sumarhúsi í Suður-Frakklandi í júlí 2009. Síðasta kvöldið (22. júlí) í sumarhúsinu var nokkrum könglum safnað af lóðinni, þeim pakkað og teknir með heim til Íslands. Viku síðar uppgötvuðust sporðdrekarnir í könglunum, annar nýdauður en hinn lifandi. Sá var fullvaxinn. Sporðdrekunum var komið til Náttúrufræðistofnunar 6. ágúst. Þeim sem lífsandann dró var þar haldið lifandi áfram. Sá launaði velgjörðina með því að ala um 20 afkvæmi sem höfðu komið sér fyrir á baki umhyggjusamrar móður sinnar þann 24. ágúst. Um viku síðar tóku afkvæmin að yfirgefa móðurina.

Týrusporðdreki nær 35–45 mm lengd. Bolurinn og halinn er dökkur, næstum svartur, en fætur ljósari. Endaliður halans með eiturstingnum er gulleitur og dregur tegundin íslenskt heiti sitt af ljóstýrunni.

Heimildir

UK Safari 2009. European scorpion http://www.uksafari.com/scorpions.htm [skoðað 2.9.2009].

Benton, T.G. 1991. The life history of Euscorpius flavidaudis (Scorpiones, Chactidae). The  Journal of Arachnology 19: 105–110.

Jackman, J.A. and Brown, Wizzie 2005. Scorpions. Texas Agricultural Extension Service http://insects.tamu.edu/extension/publications/epubs/e_362.cfm [skoðað 2.9.2009].

Rein, J.O. 2008. European Scorpions. A review of the scorpion fauna of Europe http://www.ub.ntnu.no/scorpion-files/european_scorp.htm [skoðað 2.9.2009].

 

©Erling Ólafsson, 2. september 2009


Allir sporðdrekar | Allar pöddur | Íslenska fánan

 


Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Slæðingar með varningi > Listi yfir pöddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica