Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Holugeitungsdrottning (Vespula vulgaris), óvelkominn landnemi. © Erling Ólafsson

Vínekrubobbi - Eobania vermiculata (Müller, 1774)

Fylking: Mollusca Flokkur: Gastropoda Ættbálkur: Pulmonata Ætt: Helicidae

Sandhólabobbi - Theba pisana

Vínekrubobbi 12 mm. ©EÓSandhólabobbi - Theba pisana
Vínekrubobbi 12 mm. ©EÓ

[Smellið á myndir til að stækka]

Útbreiðsla
Allt umhverfis Miðjarðarhaf og á eyjum þar í hafi, Litla-Asía, Krímskagi.

Ísland
Tveir fundarstaðir, Selfoss og Aðaldalur.

Lífshættir
Vínekrubobbi fannst upphaflega á grassteppum en finnst nú einna helst á ekrum, í görðum og vegköntum, í gróðurþykkni allskonar og á vínekrum.

Almennt
Vínekrubobbi er fágætur slæðingur á Íslandi sem fannst í tvígang með stuttu millibili haustið 2009, þ.e. á Núpum í Aðaldal 1. október og við Selfoss átta dögum síðar eða 9. október. Báðir bobbarnir fundust í vínberjaklösum. Því má líklegt telja að þeir hafi borist til landsins með sömu sendingunni frá S-Evrópu. Vínekrubobbi er sannarlega augnakonfekt, einn af allnokkrum röndóttum bobbum af brekkubobbaættinni (Helicidae). Kuðungurinn er tiltölulega flatur, þ.e. með lága strýtu. Skelröndin umhverfis munnann er þunn á báðum bobbunum sem hingað bárust og merkir að um ungviði sé að ræða. Á fullmótuðum kuðungum er röndin þykk og útsveigð, hvít á lit. Grunnlitur skeljarinnar er kremaður. Spíralrendurnar eru fimm að grunni til en geta runnið saman og verið slitróttar.

Heimildir

Pfleger, V. & J. Chatfield 1988. A Guide to Snails of Britain and Europe. Hamlyn, England. 216 bls.

©Erling Ólafsson, 16. nóvember 2009


Allir sniglar | Allar pöddur | Íslenska fánan

 


Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Slæðingar með varningi > Listi yfir pöddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica