Apasnegla - Phobetron hipparchia (Cramer, 1777)
Fylking: Arthropoda Flokkur: Insecta Ættbálkur: Lepidoptera Ætt: Limacodidae
![]() |
|
Apasnegla, lengd aftur á vængenda 18 mm. ©EÓ |
Útbreiðsla
Útbreidd í Mið- og Suður-Ameríku, allt frá Mexíkó og suður úr, og berst þaðan einkum með banönum til annarra heimsálfa.
Ísland
Tveir fundarstaðir, Kópavogur og Blönduós.
Lífshættir
Litlar upplýsingar finnast aðgengilegar um apasneglu nema þær helstar að lirfurnar nærist á margskonar trjám, m.a. bananatrjám (Musa) og Gliricidia sepium.
Almennt
Apasnegla hefur tvívegis fundist hér á landi, á Blönduósi 12. febrúar 1996 og í Kópavogi 16. október 2009. Ekki hefur verið staðfest með hvers konar varningi fiðrildin bárust til landsins, en bæði fiðrildin fundust í verslunum með matvæli. Bananasendingar liggja óneitanlega undir grun en kunnugt er um nýklakið fiðrildi í banönum sem voru fluttir til Danmerkur frá Equador í október 1991.
Apasnegla er afar framandi fiðrildi að sjá enda langt að komin. Hún er bústin og kubbsleg og afar skrautleg, frambolur og framvængir með flóknu mynstri í appelsínugulum, rauðum og brúnum litum, afturbolur einlitur svartur eða rauðgulur og svartur með rauðgulan krans um afturendann. Fætur eru langir og kröftugir, alsettir þéttum hárafeldi og ná mjög traustu haldi á undirlagi. Yfirborð framvængja er alsett bólum. Lirfur eru afar sérkennilegar (Monkey slug á ensku) en þær hafa því miður ekki fundist hér. Þær eru gular til rauðgular og minna helst á bertálknasnigla í sjó, með sex langar fingurlaga totur út frá bolnum og helmingi styttri og grennri totur fyrir framan og aftan þá og á milli. Lirfurnar eru alþaktar grófum hárum og burstum sem gefa við snertingu frá sér ertandi eitur.
Heimildir
Hogue, C.L. 1984. Latin American Insects and Entomology. University of California Press, Berkley og Los Angeles. 508 bls.
Karsholt, O. 1994. Nogle indslæbte sommerfugle i Danmark samt bemærkninger om dette emne. Ent. Meddr 62: 1–6.
©Erling Ólafsson, 11. desember 2009.
Öll fiðrildi | Allar pöddur | Íslenska fánan




