Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Skemmukönguló (Tegenaria atrica ), nýr landnemi í birgðageymslum. © Erling Ólafsson

Einitíta - Cyphostethus tristriatus (Fabricius, 1787)

Fylking: Arthropoda Flokkur: Insecta Ættbálkur: Hemiptera Ætt: Acanthosomatidae

Einitíta - Cyphostethus tristriatus

Einitíta, 11 mm. ©EÓ[Smellið á mynd til að stækka]

Útbreiðsla
Evrópa frá Miðjarðarhafi norður til sunnanverðrar Skandinavíu, austur til V-Rússlands og Tyrklands. Allalgeng og í aukningu í Danmörku og á Bretlandseyjum norður til Skotlands.

Ísland
Þéttbýli á Suðvesturlandi; Hafnarfjörður, Garðabær, Reykjavík, Seltjarnarnes, Mosfellsbær, Kjalarnes. Einnig Flói og Hella á Suðurlandi og  Egilsstaðir, Seyðisfjörður og Fáskrúðsfjörður á Austurlandi.

Lífshættir
Einitíta finnst á heiðum, trjáplantekrum og í görðum. Hún lifir á safa einiberja (Juniperus communis) en hefur einnig fundist á skyldum tegundum kýprusættarinnar, þ.e. lífviði (Thuja) og kýprusviði (Chamaecyparis). Fullorðnar einitítur finnast allt árið en ungviði á tímabilinu frá júní til október. Fullorðin dýr brúa því veturinn.

Almennt
Einitíta lifir ekki hér á landi en berst hingað einkum með innfluttum greinum í jólaskreytingar. Hún fannst fyrst í Kópavogi 1976 og af og til upp frá því eða þangað til mikillar aukningar gætti á síðasta áratug. Árið 1995 bárust Náttúrufræðistofnun Íslands 15 eintök, sex 1996 og sjö 1997, í minni mæli eftir það en þó næstum árlega. Einungis fullorðin dýr hafa fundist hér af þessari glæsilegu skortítu, á tímabilinu 21. október til 28. febrúar og tvær í byrjun júní. Einitíta er okkur fyrst og fremst jólaglaðningur og hluti af stemningunni í aðdraganda jóla. Af 55 eintökum í vörslu Náttúrufræðistofnunar fundust sex í lok nóvember og 42 í desember. Einitítur finnast gjarnan í blómaverslunum sem versla með greinar til jólaskreytinga og á heimilum eftir að skreyttum aðventukransi hefur verið komi fyrir í byrjun aðventu.

Einitíta er fallegt skordýr, græn á lit með ryðrauðar sveigðar rendur á himnukenndum framvængjum. Þó hún sé í aukningu í nágrannalöndunum, í Englandi einkum vegna aukinnar plöntunar hýsilplantna í görðum og væntanlega hlýnandi loftslags, eru engar líkur á því að hún nái hér fótfestu í bráð. Hún verður þó án efa áfram ánægjuleg uppákoma á heimilum okkar í undirbúningi jólanna.

Heimildir

Askew, R.R. 1983. Cyphostethus tristriatus (F.) (Hem. Acanthostomatidae) on Chamaecyparis in South Wales. Entomologist´s mon. Mag. 119: 220.

British Bugs: An online identification guide to UK Hemiptera. Cyphostethus tristriatus Juniper Shieldbug
http://www.britishbugs.org.uk/heteroptera/Acanthosomatidae/cyphostethus_tristriatus.html[skoðað 20.1.2010].

Eales, H. 2007. Cyphostethus tristriatus is in Scotland! Het News 9, Spring 2007: 11.

Erling Ólafsson 1994. Athyglisverð skordýr: Einitíta. Náttúrufræðingurinn 64: 110.

 

©Erling Ólafsson, 20. janúar 2010.

 

Allar skortítur | Allar pöddur | Íslenska fánan

 


Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Slæðingar með varningi > Listi yfir pöddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica