Garðabobbi - Cornu aspersum (O.F. Müller, 1774)
Fylking: Mollusca Flokkur: Gastropoda Ættbálkur: Pulmonata Ætt: Helicidae
![]() |
|
Garðabobbi, 30 mm. ©EÓ |
Útbreiðsla
Náttúruleg heimkynni eru umhverfis Miðjarðarhaf, frá NV-Afríku austur til Egyptalands, frá Íberíuskaga austur til Litlu-Asíu, í V-Evrópu norður til Niðurlanda og Bretlands þar sem hann hefur fylgt manninum norður eftir. Hefur slæðst með mönnum til annarra heimsálfa og tekið sér bólfestu víða.
Ísland
Slæðingur fundinn nokkrum sinnum hérlendis, í Reykjavík, Hafnarfirði og á Akureyri.
Lífshættir
Garðabobbi finnst við margskonar aðstæður, í skógum og gróðurþykkni, á ökrum, vínekrum og klettum, sandhólum við sjávarsíðu, í skrúðgörðum og húsagörðum þar sem hann kann að valda skaða á gróðri. Matarval hans er fjölbreytt, ávaxtatré, garðplöntur, matjurtir og korn. Sjálfur er hann mikilvæg bráð fyrir dýr af ýmsu tagi.
Almennt
Garðabobbi hefur fundist átta sinnum hér á landi, fyrst í Hafnarfirði í júlí 1992 og hafði sá líkast til borist með granítsteinum frá Portúgal. Næsti fannst einnig í Hafnarfirði, í matvöruverslun í maí 1995. Næstu fjórir fundust í Reykjavík, í september 2002 á athafnasvæði flutningafyrirtækis við Skútuvog, í júní 2004 í lest skips sem hafði komið frá Norðurlöndum, í júlí 2005 í blómaverslun Blómavals og í september 2006 í Grasagarðinum í Laugardal og hafði sá borist með hollenskum plöntum sem garðurinn fékk frá Blómavali. Sá sjöundi fannst á byggingasvæði á Akureyri í september 2008 en á staðnum var aðflutt byggingarefni. Síðast fannst garðabobbi utan á gámi í Sundahöfn í nóvember 2011. Allir hafa bobbarnir borist hingað með varningi á tímabilinu frá maí til nóvember. Ólíklegt er að garðabobbi nemi hér land í bráð þó hann geti borist hingað greiðlega.
Garðabobbi er með stærstu sniglum sem hér kunna að sjást. Kuðungurinn er belgmikill og frekar kúlulaga með kalkríkri, sterkri skel. Hann er gulbrúnn á lit, að grunni til með fimm brúnum spíralröndum sem renna saman að miklu leyti og brotna upp þannig að skelin verður meira eða minna óreglulega flikrótt. Snigillinn er ljósleitur, grábrúnn, og þykir afbragðsgóður til átu eins og fleiri stórir sniglar.
Heimildir
Pfleger, V. & J. Chatfield 1988. A Guide to Snails of Britain and Europe. Hamlyn, England. 216 bls.
Wikipedia. Helix aspersa http://en.wikipedia.org/wiki/Helix_aspersa [skoðað 3.3.2010]
©Erling Ólafsson, 3. mars 2010; uppfært 28. nóvember 2011.



