Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Varmasmiður (Carabus nemoralis Müller) í Hveragerði. © Erling Ólafsson

Sandhólabobbi - Theba pisana (Müller, 1774)

Fylking: Mollusca Flokkur: Gastropoda  Ættbálkur: Pulmonata  Ætt: Helicidae

Sandhólabobbi - Theba pisana

Sandhólabobbi, 19 mm. ©EÓSandhólabobbi - Theba pisanaSandhólabobbi, 19 mm. ©EÓ [Smellið á myndir til að stækka]

Útbreiðsla
Upprunninn í Miðjarðarhafslöndum austur til Ísraels og Egyptalands. Hefur breiðst út norður með ströndum Atlantshafs til Belgíu og Hollands og með mönnum til SV- Bretlands og fleiri einangraðra staðir víðar í Evrópu. Hefur auk þess borist með mönnum til annarra heimsálfa og finnst þannig til kominn m.a. í Kaliforníu, á stöðum sunnar í Afríku, í SA-Astralíu og á Tasmaníu.

Ísland
Einn fundarstaður, Reykjavík.

Lífshættir
Sandhólabobbi finnst einkum á þurrum stöðum með ströndum fram einkum á sandhólasvæðum þar sem sniglarnir festa sig á gróðurinn innilokaðir í skel sinni á meðan þurrkar vara. Hann getur þolað nokkuð frost.

Almennt
Sandhólabobbi fannst á heimili í Fellahverfi í Reykjavík 21. júní 2010. Þangað hafði hann að líkindum borist með matvörum úr marvöruverslun við Korputorg. Er það eina staðfesta tilfellið hér á landi. Ekki er óhugsandi að geti hann sest hér að við hentug skilyrði með hlýnandi loftslagi.

Sandhólabobbi er kremhvítur á lit, stundum rauðgulur, ýmist einlitur eða með ljósbrúnni til brúnni slitróttri spíralrönd á vindingunum. Bobbinn er tiltölulega flatur, með lága strýtu og þunna skel umhverfis munnann.

Heimildir

Pfleger, V. & J. Chatfield 1988. A Guide to Snails of Britain and Europe. Hamlyn, England. 216 bls.

Wikipedia. Theba pisana. http://en.wikipedia.org/wiki/Theba_pisana [skoðað 1.9.2010]

 

©Erling Ólafsson, 1. september 2010.


Allir sniglar | Allar pöddur | Íslenska fánan

 




Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Slæðingar með varningi > Listi yfir pöddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica