Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Grasvefari (Eana osseana) í Surtsey, algengasta fiðrildi Íslands. © Erling Ólafsson

Baugabobbi - Cepaea nemoralis (Linnaeus, 1758)

Fylking: Mollusca Flokkur: Gastropoda Ættbálkur: Pulmonata Ætt: Helicidae

Baugabobbi - Cepaea nemoralis

Baugabobbi. Breidd kuðungs 25 mm. ©EÓBaugabobbi - Cepaea nemoralisBaugabobbi. Breidd kuðungs 25 mm. ©EÓ
[Smellið á myndir til að stækka]

Útbreiðsla
V- og M-Evrópa, með ströndum Skandinavíu og Eystrasalts til Litháens og Lettlands; Þýskaland, Tékkland, Ungverjaland, á Balkanskaga til Bosníu. Hefur borist með mönnum til nýrra heimkynna, m.a. í N-Ameríku.

Ísland
Fjórir fundarstaðir; Heiðmörk, Kópavogur, Keflavík og Patreksfjörður.

Lífshættir
Kjörlendi baugabobba er í skógum og gróðurþykkni, í limgerðum, görðum, brekkum og á grassteppum, nær hátt til fjalla í Ölpunum og Pýreneafjöllum. Hann nærist á plöntum en virðist ekki valda skaða sem telur.

Almennt
Baugabobbi er fágætur slæðingur til landsins með varningi. Alls er kunnugt um fimm tilvik. Hann fannst fyrst í október 1991 og hafði borist ásamt fleiri kvikindum með stálvörum frá Ítalíu til framkvæmda í Heiðmörk. Í maí 2005 fannst einn sem hafði komið sér fyrir utan á hurð innflutningsfyrirtækis í Kópavogi. Þriðja tilvikið er frá Patreksfirði en þá var um að ræða tvo snigla sem bárust þangað með lausum frystieiningum frá Danmörku. Baugabobbi í garði í Grafarvogi í Reykjavík í júní 2008 er fjórða skráða tilvikið og enn annar fannst á lager hjá BYKO í Keflavík í júlí sama ár. Ekki eru líkur til þess að tegundin setjist hér að í bráð. Baugabobbi hefur einnig slæðst til Færeyja (maí 2009). Kuðungur baugabobba er einkar fallegur, gulur með brúnu spíralbelti og jaðar munnans er einnig brúnn.

Heimildir

Jensen, J.-K. 2009. Insekter og andre dyr: Cepaea nemoralis. www.jenskjeld.info/DK_side/indexdk.htm [skoðað 7.8.2009].

Pfleger, V. & J. Chatfield 1988. A Guide to Snails of Britain and Europe. Hamlyn, England. 216 bls.

©Erling Ólafsson, 16. nóvember 2009


Allir sniglar | Allar pöddur | Íslenska fánan

 




Þú ert hér: Forsíða > Pöddur > Slæðingar með varningi > Listi yfir pöddur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Pöddur

  • Pöddur í náttúrunni
  • Pöddur í görðum
  • Pöddur í húsum
  • Nýir landnemar
  • Flækingar með vindum
  • Slæðingar með varningi
  • Flokkun

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica