Erlent samstarf
Náttúrufræðistofnun Íslands annast framkvæmd nokkurra alþjóðlegra samninga og samþykkta að hluta eða öllu leyti fyrir umhverfisráðuneytið og sinnir öðrum verkefnum fyrir svæðisbundnar alþjóðlegar stofnanir. Starfsmenn stofnunarinnar taka jafnframt virkan þátt í margháttuðu alþjóðlegu samstarfi og samvinnuverkefnum á sviði vísinda. Alþjóðasamstarf og samskipti eru afar mikilvæg öllum stofnunum til þess að þær geti fylgst með straumum og stefnum og skapað tengsl við vísindamenn og stjórnendur sem vinna að hliðstæðum verkefnum erlendis. Sum af rannsóknarverkefnum Náttúrufræðistofnunar tengjast beint eða óbeint alþjóðlegum skuldbindingum.
Helstu alþjóðleg verkefni sem stofnunin fæst við tengjast: Bernarsamningi um verndun villtra dýra og plantna og búsvæða í Evrópu, Samningi um líffræðilega fjölbreytni, Samningi um alþjóðaverslun með tegundir dýra og plantna sem eru í útrýmingahættu, starfshópi Norðurskautsráðsins vernd lífríkis á norðurslóðum, CAFF, Alþjóðlegu samstarfi um birtingu gagnasafna um líffræðilega fjölbreytni, GBIF, og Evrópsku umhverfisstofnuninni.
Fleiri erlend samstarfsverkefni má nefna, svo sem gerð og útgáfu Flóru Norðurlanda, Fléttuflóru Norðurlanda, Flóru Evrópu, Evrópsku sveppaverndarnefndina o.fl. sem Eyþór Einarsson, Hörður Kristinsson og Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir hafa sinnt fyrir hönd stofnunarinnar. Þá tók Guðmundur A. Guðmundsson þátt í heimskautaleiðangri Lundarháskóla til Beringssunds sumarið 2005 (Beringia 2005), en hann hefur farið í alls í fimm heimskautaleiðangra sem háskólinn í Lundi hefur skipulagt.
Hér er hægt að nálgast upplýsingabæklinginn „Bjartari framtíð“ um 13 alþjóðasamninga um náttúru og menningarumhverfi (ísl. og enska).

