Samningur um alþjóðaverslun með tegundir dýra og plantna sem eru í útrýmingahættu (CITES)
CITES-samningurinn er alþjóðlegur samningur um stjórnun og eftirlit á alþjóðlegri verslun með tegundir plantna og dýra sem taldar eru í útrýmingarhættu. Tilgangur samningsins er að tryggja að ekki sé gengið of nærri tegundum sem verslað er með á alþjóðamarkaði. Samningurinn setur ýmsar reglur um verslun með viðkomandi tegundir sem aðildarríkjum samningsins ber að framfylgja. Sumar tegundir er bannað að versla með en verslun með aðrar tegundir er leyfð að uppfylltum tilteknum skilyrðum.
Ísland gerðist aðili að CITES-samningnum í janúar árið 2000. Náttúrufræðistofnun Íslands er vísindalegur ráðgjafi umhverfisráðuneytisins varðandi skuldbindingar sem lúta að plöntu- og dýrategundum sem ekki teljast til nytjastofna sjávar, en nytjastofnar sjávar eru á könnu sjávarútvegsráðuneytis og Hafrannsóknastofnunarinnar.
Umsjón: Trausti Baldursson

