Lífríkisvernd á norðurslóðum (CAFF)
Náttúrufræðistofnun Íslands hefur frá árinu 1992 haft umsjón með framkvæmd samþykktar um vernd lífríkis á norðurslóðum (Conservation of Arctic Flora and Fauna – CAFF). Samþykkt þessi, sem norðurskautsríkin átta stóðu að, fellur nú undir starfssvið Norðurskautsráðsins sem stofnað var 1996 með umhverfisvernd og sjálfbæra þróun á norðurslóðum að leiðarljósi. Náttúrufræðistofnun hefur átt fulltrúa í stjórn CAFF frá upphafi og tekið þátt í starfi sérfræðinganefnda um sjófugla, gróður, friðlandanet og lífríkisvöktun á norðurslóðum.
Umsjón: Trausti Baldursson
