NOBANIS-verkefnið um ágengar tegundir í Norður-Evrópu
Til þess að draga úr eða koma í veg fyrir tjón af völdum ágengra tegunda var komið á fót samstarfsverkefni þjóða í Norður-Evrópu (NOBANIS). Þátttakendur í verkefninu eru nú Danmörk, Eistland, Færeyjar, Finnland, Grænland, Ísland, Lettland, Litháen, Noregur, Pólland, Svíþjóð og Þýskaland Megintilgangur verkefnisins er að þróa og búa til net gagnagrunna með upplýsingum um framandi tegundir í Norður-Evrópu og gera þær aðgengilegar á Veraldarvefnum.
Náttúrufræðistofnun Íslands hefur tekið þátt í verkefninu fyrir Íslands hönd. Við upplýsingaöflun hefur verið leitað til fjölmargra sérfræðinga bæði innan stofnunar og utan.
Ameríski minkurinn, framandi og ágeng tegund á Íslandi. Allt frá því að minkurinn slapp út í villta náttúru upp úr 1930 hefur hann haft mikil áhrif. Hann finnst nú um allt land. Líklegt er að minkurinn hafi valdið fækkun í stofnum sumra fuglategunda og breytt útbreiðslu annarra. Ljósmynd Jóhann Óli Hilmarsson.
Miðað er við að upplýsingar á vefsíðu verkefnisins verði uppfærðar með reglubundnum hætti.


