Hlutverk Náttúrufræðistofnunar Íslands
Náttúrufræðistofnun Íslands starfar samkvæmt lögum nr. 60/1992. Meginhlutverk hennar er að rannsaka íslenska náttúru og stunda skipulega heimildasöfnun um hana með því að :
- Skrá þær tegundir plantna, dýra, örvera, steinda, bergtegunda og jarðmyndana sem finnast hér á landi og í sjónum umhverfis landið,
- safna eintökum af þessum tegundum og varðveita í vísindasöfnum,
- vakta ástand hinna ýmsu dýrastofna og gróðursamfélaga,
- rannsaka lífshætti og vistfræði einstaka lífverutegunda og stofna og þá krafta sem ráða gerð og þróun íslenskrar náttúru,
- afla gagna um skriðuföll á landinu og meta vá af þeirra völdum,
- annast fuglamerkingar.
Einstök rannsóknarverkefni á Náttúrufræðistofnun skipta tugum. Mörg eru þess eðlis að þau taka ár og áratugi eða verður jafnvel aldrei fulllokið. Lýsingu á einstökum rannsóknarverkefnum er að finna undir viðkomandi fagsviði og starfsmanni.
Náttúrufræðistofnun hefur einnig víðtækt fræðslu- og ráðgjafarhlutverk og rækir það m.a. með því að:
- Miðla upplýsingum um náttúru Íslands til skóla, almennings og fræðasamfélagsins,
- aðstoða önnur söfn við gerð náttúrusýninga,
- leiðbeina stjórnvöldum og framkvæmdaraðilum um landnýtingu og vernd náttúruminja,
- gefa út fræðirit og náttúrufarskort yfir gróður vistgerðir og jarðfræði landsins.
