Ráðgjöf og þjónusta
Ráðgjöf
Samkvæmt lögum ber Náttúrufræðistofnun Íslands að leiðbeina um hóflega nýtingu náttúrulegra auðlinda og aðstoða við mat á verndargildi vistkerfa, náttúruminja, áhrifum landnotkunar og mannvirkjagerðar á náttúruna.
Stærstu ráðgjafarverk af þessu tagi eru unnin að beiðni ráðuneyta, orkufyrirtækja, sveitarfélaga og einkaaðila. Markmið þeirra er að afla grunngagna um náttúrufar; gróður, dýralíf og jarðfræði, svo unnt sé að leggja mat á verndargildi vistkerfa og náttúruminja tiltekinna svæða og meta áhrif mannvirkjagerðar og annarrar landnotkunar á náttúruna. Niðurstöður verkefna eru gefnar út í skýrslum til verkkaupa.
Umsjón: Trausti Baldursson
Þjónusta
Pöddur
Stofnunin býður upp á greiningar- og ráðgjafarþjónustu fyrir almenning og meindýraeyða. Tilfallandi sýni eru greind við fyrstu hentugleika og niðurstöður póstsendar viðkomandi ásamt upplýsingum um lifnaðarhætti og skaðsemi dýranna og leiðbeiningum um aðgerðir.
Eyðublöð til útfyllingar með pöddugreiningu á pdf formi og doc formi sem gott er að fylla út áður en komið er með sýni á stofnunina.
Pöddugreining kostar kr. 2.000 og aðeins er tekið við pöddum sem hafa verið einangraðar frá matvöru, fatnaði eða öðru þar sem þær hafa fundist. Ekki er tekið á móti pakkningum, t.d. mjölpokum, til að leita að pöddum í þeim, því það bíður heim sýkingarhættu á stofnuninni.
Hægt er að kynna sér pöddur á pödduvef Náttúrufræðistofnunar.
Umsjón: Erling Ólafsson
Sveppir
Sveppafræðingur stofnunarinnar greinir sveppi fyrir fyrirtæki og almenning og tekur stofnunin jafnframt gjarnan við fróðlegum upplýsingum um svepparíki Íslands. Ágætt er að hafa samband áður en sýni er sent svo hægt sé að ákvarða hvort þörf sé á frekari greiningu. Sveppagreining fer fram á Akureyrarsetri.
Umsjón: Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir
Plöntur
Sérfræðingar stofnunarinnar taka að sér plöntugreiningar en það sem gjarnan má fylgja slíkum fyrirspurnum er þurrkað eintak plöntunnar og eða ljósmynd ef kostur er auk upplýsinga um fundarstað, búsvæði dagsetning og fleira sem kann að vera vert að nefna í hverju tilviki fyrir sig.
Umsjón: Starri Heiðmarsson
Sjá nánari upplýsingar á síðunni Fundur á plöntu eða dýri.

