Safna- og flokkunarfræðideild

Safna og flokkunarfræðideild, ásamt Akureyrarsetri, er vettvangur grunnrannsókna í steinafræði, steingervingafræði, flokkunarfræði lífvera og jarðfræðikortagerð. Almenningi, stofnunum og fyrirtækjum er veitt ýmis þjónusta og ráðgjöf, til að mynda um verndun náttúruminja, frjómælingar og greiningu meindýra sem annarra tegunda. Einnig aðstoðar deildin við öflun náttúrugripum til sýninga og rannsókna, eða lánar tímabundið gripi úr gripasöfnum stofnunarinnar (sjá reglur um gripalán Náttúrufræðistofnunar).

Líffræði

Rannsókir í flokkunarfræði lífvera beinast einkum að: breytileika tegunda, lífsferlum, tegundalýsingum og nafngiftum; landfræðilegri útbreiðslu og búsvæðum tegunda; sögulegum uppruna íslenskrar flóru og fánu; þróunarsögu og flokkunarkerfi tegunda. Mikilvægur hluti rannsóknanna er uppbygging á vísindasafni lífverutegunda og skráning safnkostsins í gagnagrunna. Markmiðið er að tiltæk safnaeintök endurspegli breytileika tegunda og staðfesti landfræðilega útbreiðslu þeirra, jafnt á landi sem í sjó.

Jarðfræði

Fengist er við rannsóknir í steinda- og bergfræði, á einstökum steindum og steindahópum. Upplýsingar um íslenskar steindir eru skráðar í gagnagrunn og aflað er eintaka fyrir steinasafn stofnunarinnar. Á sama hátt er aflað upplýsinga um íslenskt berg og sýnishornum safnað af öllum bergtegundum í bergtegundasafn stofnunarinnar. Rannsóknir eru stundaðar á ákveðnum bergtegundum og bergröðum. Unnið er að skráningu á berg- og jarðgrunni landsins og gerð jarðfræðikorta fyrir landið. Einnig er unnið að kortlagningu og flokka námasvæða eftir magni, aðgengi og mati á verndargildi. Í deildinni eru stundaðar rannsóknir á íslenskum steingervingum, sem spannar um 14 milljónir ára. Stefnt er að því að afla eintaka af öllum steingerðum tegundum í vísindasöfn stofnunarinnar, svo þau endurspegli breytta tegundasamsetningu lífríkisins í gegnum jarðsöguna, breytileika tegunda í misgömlum jarðmyndunum og þróun tegunda.

okt. 2009, Guðmundur Guðmundsson

Starfsmenn Safna og flokkunarfræðideildar eru:

Guðmundur Guðmundsson, deildarstjóri, flokkunarfræðingur

Ellý R. Guðjohnsen, líffræðingur

Erling Ólafsson, skordýrafræðingur

Gróa Valgerður Ingimundardóttir, líffræðingur

Kristján Jónasson, fagsviðsstjóri jarðfræði

Margrét Hallsdóttir, jarðfræðingur

María Ingimarsdóttir, líffræðingur

Sigmundur Einarsson, jarðfræðingur

Sveinn Jakobsson, jarðfræðingur

Þorvaldur Björnsson, hamskeri



 

 

Efra hliðarval


Útlit síðu: