Skipulag Náttúrufræðistofnunar Íslands

Náttúrufræðistofnun Íslands er deildarskipt í samræmi við megin hlutverk stofnunarinnar eins og þau eru mótuð í lögum, stefnumótun og raunverulegu starfi. Deildirnar eru eftirfarandi: Upplýsingadeild sem sér um vörslu og miðlun þekkingar og fræðslu, vistfræðideild sem sinnir rannsóknum og vöktun á tegundum og samfélögum dýra og plantna, safna- og flokkunar­fræðideild sem ásamt Akureyrarsetri hefur umsjón með vísindasöfnum stofnunarinnar og tölvuskráningu alls safnkostsins. Þvert á deildirnar ganga helstu fagsvið sem stofnunin fæst við, þ.e. jarðfræði, grasafræði og dýrafræði. Skrifstofa annast fjármálastjórn, bókhald og starfsmannahald, auk þjónustu við aðrar deildir og einstaka starfsmenn. Yfirstjórn er skipuð forstjóra og forstöðumönnum deilda og skrifstofu.

Jón Gunnar Ottóson, forstjóri

Guðmundur Guðmundsson, forstöðumaður Safna- og flokkunarfræðideildar, staðgengill forstjóra

Birta Bjargardóttir, forstöðumaður Upplýsingadeildar

Borgþór Magnússon, forstöðumaður Vistfræðideildar

Kristinn J. Albertsson, forstöðumaður Akureyrarseturs

Lárus Svanlaugsson, fjármálastjóri og forstöðumaður Skrifstofudeildar



 

 

Efra hliðarval


Útlit síðu: