Merki Náttúrufræðistofnunar Íslands
Ástæður fyrir því að hrafninn varð fyrir valinu sem einkennismerki Náttúrufræðistofnunar eru margvíslegar: Hrafninn er mjög áberandi í íslenskri náttúru og hann má sjá nær alls staðar á landinu. Hrafninn er fugl Hrafna-Flóka og landnámsins. Hann er jafnframt fugl Óðins en Huginn og Muninn voru tákn visku og spádómsgáfu. Hrafninum fylgja ýmsar sagnir. Ein er sú að hver sá sem reynir að ósekju að steypa undan hrafni, drýgi synd og verði ólánsmaður. Í þessari sögu má segja að felist vörn fyrir stofnunina. Það er líka sagt að "guð launi fyrir hrafninn" sem er ekki slæmt þegar þröngt er í búi. En hrafninn hefur einnig sínar slæmu hliðar. Hann er þjófóttur og grefur vanalega þýfið til að eiga það til seinni tíma. Gallinn er hins vegar sá að hann tekur alltaf mið af skýjum og finnur því aldrei felustaðina aftur!
Hrafninn er íslenskur fugl með sögu sem tengd er manninum, landnámi hans á Íslandi og búsetu.
![]() |
![]() |
| Prentupplausn, 300 punktar. | Prentupplausn, 300 punktar. |
![]() |
![]() |
| Vefupplausn, 72 punktar | Vefupplausn, 72 punktar. |
Sigurbjörg Stefánsdóttir, grafískur hönnuður teiknaði einkennismerki Náttúrufræðistofnunar.





