Ferilskrá Harðar Kristinssonar
Menntun
Framhaldsnám og doktorsverkefni við Háskólann í Göttingen í Þýskalandi 1963-1966 með grasafræði sem aðalgrein en dýrafræði og plöntusjúkdóma sem aukagreinar. Doktorspróf í grasafræði (Dr. rer. nat.) frá sama háskóla 16. desember 1966. Prófritgerðin fjallaði um lífsferil asksveppa sem sýkja refasmára (Medicago sativa), rifs og sólberjarunna (Ribes rubrum og Ribes nigrum) og var titill hennar: Untersuchung zum sexuellen Entwicklungsgang von Pseudopeziza medicaginis (Lib.) Sacc. und Drepanopeziza ribis (Kleb.) v. Höhn.
Nám í líffræði við háskólana í Göttingen og Freiburg í Þýskalandi 1958-1962.
Stúdentspróf úr stærðfræðideild M.A. 1958.
Starfsreynsla
Sérfræðingur í grasafræði við Náttúrufræðistofnun Íslands frá 1993.
1993-1999 Forstöðumaður Akureyrarseturs Náttúrufræðistofnunar Íslands.
1987-1993 Forstöðumaður Náttúrufræðistofnunar Norðurlands á Akureyri.
1977-1987 Prófessor í grasafræði við Háskóla Íslands.
1974-1977 Forstöðumaður Náttúrugripasafnsins á Akureyri.
1971-1976 Stundakennari við Háskóla Íslands.
1970-1977 Grasafræðingur við Náttúrugripasafnið á Akureyri og Lystigarð Akureyrar.
1970-1971 Stundakennari við Menntaskólann á Akureyri.
1967-1970 Rannsóknastörf (Postdoctoral Research Associate) við Duke University í Durham, North Carolina, Bandaríkjunum. Verkefni: Fléttuflóra Íslands.
1965 Leiðangur til Surtseyjar og um Suðurland til fléttusöfnunar á vegum Duke háskóla.
1963-1965 Myndatökur, plöntu- og dýramyndir fyrir Fræðslumyndasafn ríkisins.
1963 Gróðurkortaleiðangur með Ingva Þorsteinssyni og Steindóri Steindórssyni.
1963 Rannsóknir á hæðarmörkum plantna á Eyjafjarðarsvæðinu.
1962-1963 Kennari við Menntaskólann á Akureyri.
1961 Söfnun íslenskra plantna til ræktunar í Lystigarðinum á Akureyri.

