Ferilskrá Eyþórs Einarssonar
Menntun
1950-1958 Náttúrufræði við Kaupmannahafnarháskóla (aðalgr. grasafræði, aukagr. dýrafræði og jarðfræði), mag. scient. 1958.
1949-1950 Verkfræðinám Hásk. Íslands, cand. phil. 1950.
1949 Stúdentspróf frá M.A.
Starfsferill
Vinna við rannsóknir á háplöntum, plöntulandafræði og gróðurfari Íslands, einkum til fjalla, frá 1955 og landnámi plantna og framvindu gróðurs í jökulskerjum í Vatnajökli frá 1961. Auk þess rannsóknir á sviði náttúruverndar, einkum hvað snertir hugsanlegar breytingar á flóru og gróðurfari af völdum verklegra framkvæmda.
Deildarstjóri grasafræðideildar Náttúrufræðistofnunar (áður Náttúrugripasafns) Íslands frá 1. jan. 1959.
Forstöðumaður Náttúrufræðistofnunar 1963-1965, 1969-1971, 1978-1980 og 1987-1989.
Stundakennari við Menntask. í Rvk. 1958-1968.
Skipulagði kennsluna í grasafræði við Háskóla Íslands þegar líffræðikennsla var undirbúin 1967-1968, stundakennari þar 1968-1989.
Í Náttúruverndarráði frá 1. jan. 1959-26. okt. 1990, varaformaður 1972-1978 og formaður 1978-1990.
Varaformaður stjórnar Raunvísindadeildar Vísindasjóðs 1974-1978, formaður hennar 1978-1985.
Fulltrúi Íslands í Náttúruverndarnefnd Evrópuráðsins frá stofnun hennar 1963 til 1993, formaður 1985-1986.
Á sæti í Evrópudeild Threatened Plants Committee á vegum Alþjóða náttúruverndarsamtakanna (IUCN).
Hefur átt sæti í ýmsum nefndum um fræðslu og rannsóknir á sviði náttúruvísinda og náttúruverndar, bæði heima og erlendis, m.a. á vegum Evrópuráðs, Norðurlandaráðs og IUCN og verið formaður sumra þeirra.
Formaður Félags íslenskra náttúrufræðinga 1960-1962. Ritari Hins íslenska náttúrufræðifélags 1960-1964, formaður þess 1964-1966 og 1976-1980. Í stjórn Ferðafélags Íslands 1968-1979, þar af varaforseti 1977-1979. Í stjórn Landverndar frá stofnun 1969-1973. Formaður Norðfirðingafélagsins í Rvk. og nágrenni 1972-1975. Í stjórn Surtseyjarfélagsins frá stofnun 1965. Formaður Söngsveitarinnar Fílharmóníu 1968-1969.
Tók þátt í rannsóknarleiðangri Carlsberssjóðsins til Norðaustur-Grænlands 1958 og rannsóknum Institute of Polar Studies Ohio State University á Norðvestur-Grænlandi 1965.
Náms- og rannsóknarferðir til ýmissa fjallsvæða í Evrópu: Hardangervidda, Jötunheima, Dovre, Alpafjalla, Karpatafjalla og Tatrafjalla, einnig til norðurhluta Noregs, Svíþjóðar og Finnlands, til Vestur-Grænlands og til Vestur Ástralíu; einnig til nokkurra þjóðgarða í vesturhluta Bandaríkja N.-Ameríku, á Hawaii-eyjum og á Nýja-Sjálandi.
Hefur sótt fjölda alþjóðlegra funda um grasafræði og náttúruvend erlendis, þ.á.m. Alþjóðaþing grasafræðinga í Edinburgh 1964, Leningrad 1975 og Vestur-Berlín 1987 og aðalfundi IUCN á Nýja Sjálandi 1981, í Madrid 1984 og Costa Rica 1988.
Hefur flutt fyrirlestra um flóru og gróður Íslands, um rannsóknir sínar og um náttúruvernd á ýmsum stöðum í Evrópu og í Bandaríkjum N.-Ameríku.
Hefur tekið fjölda ljósmynda af plöntum og gróðurfari og hafa sumar þeirra birrst í bókum, á veggspjöldum og póstkortum.
Hlaut styrk úr vísindasjóði Atlantshafsbandalagsins 1963 til rannsókna á útbreiðslu og líffræði fjallaplantna á Íslandi, úr Vísindasjóði til rannsókna á gróðri og flóru Esjufjalla 1979 og á gróðurbreytingum í Skaftafelli 1986.
Kjörinn félagi New York Academy of Sciences 1982. Kjörinn félagi Vísindafélags Íslendinga 1987. Kjörinn "Foreign Member" Eistneska náttúruverndarfélagsins 1991. Kjörinn heiðursfélagi Hins íslenska náttúrufræðifélags 1993.
