Helstu verkefni
Skráning sjófuglabyggða
Markmiðið er að afla gagna um sjófuglabyggðir, staðsetningu þeirra, varptegundir og fjölda varpfugla eftir því sem gögn leyfa. Afla gagna um fuglastofna í sjófuglabyggðum, en þar er helst um að ræða eftirfarandi tuttugu og þrjár tegundir: fýll, stormsvala, sjósvala, skrofa, súla, dílaskarfur, toppskarfur, æðarfugl, skúmur, stormmáfur, hettumáfur, svartbakur, sílamáfur, silfurmáfur, hvítmáfur, rita, kría, lundi, geirfugl, teista, langvía, stuttnefja og álka.
Samstarfsaðilar: Arnþór Garðarsson, Háskóla Íslands, og áhugamenn um fugla.
Umsjón: Ævar Petersen (aðrir starfsmenn: Gunnar Hallgrímsson, Karólína R. Guðjónsdóttir).
