Helstu verkefni
Stofnvistfræði teistu
Markmiðið er vöktun á stofnþáttum teistu í Flatey á Breiðafirði, þ. á m. stærð varpstofns, varpaldri, tilfærslum, varpárangri, lífaldri o.fl. og sértækar rannsóknir á ýmsum þáttum, svo sem tryggð fugla við maka, hreiður og varpsvæði og öðrum sem áhrif hafa á stofnbreytingar: t.d. grásleppunet, ferðafólk, lundalýs og lundi. Merkingar veita upplýsingar um ferðir fuglanna, hvar ungfuglar setjast að til að verpa, dauðsfallaþætti, o.fl. Eitt lengsta vöktunarverkefni á fuglum hérlendis (hófst árið 1974).
Samstarfsaðilar: Morten Frederiksen, Montpellier, Frakklandi og erlendir sníkjudýrafræðingar, Thierry Boulinier og Karen McCoy, háskóli Pierre Marie Curie í París, Frakklandi, og Sverrir Thorstensen, Akureyri.
Umsjón: Ævar Petersen

