Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Páfiðrildi (Inachis io) 2004. © Erling Ólafsson

Helstu verkefni

Lífríkisvernd á norðurslóðum

Náttúrufræðistofnun Íslands hefur frá árinu 1992 haft umsjón með framkvæmd samþykktar um vernd lífríkis á norðurslóðum, Conservation of Arctic Flora and Fauna, skammstafað CAFF, fyrir hönd umhverfisráðuneytisins.

Í rammaáætlun CAFF 1998 - 2003 eru fimm megin áhersluatriði:

  • Auka áherslu á vöktun líffræðilegrar fjölbreytni tegunda, búsvæða og vistkerfa.
  • Aðgerðir til verndar erfðaefni, tegundum og búsvæðum.
  • Aðgerðir til þess að koma á fót friðlýstum svæðum þar sem þau auka verndun vistkerfa, búsvæða og tegunda.
  • Verndun lífríkis utan friðlýstra svæða til að viðhalda fjölbreytileika.
  • Auka áherslu og kynningu á líffræðilegum fjölbreytileika og sjálfbærri þróun innan atvinnuvega.

Verkefni eftir 2003 eru háð útkomu úr rammaáætlun og frekara samkomulagi ríkja á norðurslóðum.

Samstarfsaðilar Náttúrufræðistofnunar eru sambærilegir aðilar hinna aðildarríkjanna, Finnlands, Svíþjóðar, Noregs, Grænlands, Bandaríkjanna, Rússlands og Kanada, CAFF-skrifstofan og ýmsir aðilar innanlands eftir verkefnum.

Verkefni sem nú er unnið að innan CAFF eru m.a. gerð gróðurkorts af norðurslóðum, sjaldgæfar (einlendar) háplöntur á norðurslóðum og útbreiðsla þeirra, verndaráætlun fyrir svartfugla (þ. á m. vöktun svartfuglastofna, ferðir svartfugla utan varptíma, ferðir svartfugla á varptíma og skráning svartfuglabyggða), skráning sjófuglabyggða, verndaráætlun um æðarfugla, válisti yfir sjaldgæfar plöntur og dýr á norðurslóðum, varpútbreiðsla fugla, áætlun um náttúruverndarsvæði (CPAN), skilgreining búsvæða, sjálfbær nýting skóga nærri skógarmörkum, upplýsingamiðlun um CAFF-samstarfið og samband milli gagnabanka um umhverfismál.

Umsjón: Ævar Petersen
http://arcticportal.org/en/caff/




Þú ert hér: Forsíða > Stofnunin > Starfsmenn > Helstu verkefni

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Stofnunin

  • Hlutverk
  • Skipulag
  • Upplýsingadeild
  • Vistfræðideild
  • Safna og flokkunarfræðideild
  • Akureyrarsetur
  • Ráðgjöf og þjónusta
  • Umsagnir
  • Erlent samstarf
  • Skrifstofa
  • Stefnur
  • Starfsmenn
    • Akureyri
    • Reykjavík
  • Störf í boði

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica