Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Skeljar úr Tjörneslögum í Jarðfræðisafninu í Kaupmannahöfn. © Margrét Hallsdóttir

Störf í boði

Sjávarlíffræðingur

Náttúrufræðistofnun Íslands auglýsir eftir sjávarlíffræðingi í fullt starf til þriggja ára, með mögulegri framlengingu. Starfið felst í kortlagningu á vistgerðum í fjörum, sem er hluti af stærra verkefni er lýtur að kortlagningu vistgerða á Íslandi, úttekt á fuglastofnum og helstu búsvæðum þeirra.

Starfið felur í sér:

  • Kortlagningu á vistgerðum og lífríki í fjörum landsins
  • Umsjón með áætlanagerð í samvinnu við samstarfsaðila
  • Rannsóknir og vettvangsvinnu eftir atvikum
  • Úrvinnslu, vistun gagna, kortlagningu og skýrslugerð

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólapróf í sjávarlíffræði eða sambærileg menntun
  • Reynsla í kortlagningu og staðgóð þekking á lífríki fjöru er nauðsynleg
  • Þekking á EUNIS vistgerðaflokkun er æskileg
  • Þekking á tölfræðiúrvinnslu og framsetningu landupplýsinga
  • Góð kunnátta í íslensku og ensku
  • Hæfileiki til að vinna í alþjóðlegu umhverfi
  • Lipurð í mannlegum samskiptum

Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem allra fyrst.

Nánari upplýsingar um starfið veita Guðmundur Guðmundsson (gg@ni.is) og Trausti Baldursson (trausti@ni.is). Umsókn ásamt ítarlegri starfsferilsskrá, sendist á netfangið mariafb@ni.is eða með bréfpósti til Náttúrufræðistofnunar Íslands, Urriðaholtsstræti 6-8, 210 Garðabæ. Umsóknarfrestur er til 26. febrúar 2012.
 
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum stéttarfélaga opinberra starfsmanna við fjármálaráðuneytið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Við ráðningar í störf hjá Náttúrufræðistofnun Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu stofnunarinnar.



Þú ert hér: Forsíða > Stofnunin > Störf í boði

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Stofnunin

  • Hlutverk
  • Skipulag
  • Upplýsingadeild
  • Vistfræðideild
  • Safna og flokkunarfræðideild
  • Akureyrarsetur
  • Ráðgjöf og þjónusta
  • Umsagnir
  • Erlent samstarf
  • Skrifstofa
  • Stefnur
  • Starfsmenn
  • Störf í boði

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica