Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Myglusveppir á ætisskál síaðir úr lofti íbúðarhúss, Paecilomyces variotii (gulbrúnn), Penicillium sp. (blágrænn), Aspergillus ochraceus (gulur). © Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir

Viðurkenningar

Hrafn - Ranka í Kotinu
Útskorinn hrafn eftir Ragnhildi Magnúsdóttur, Rönku í Kotinu, sem fylgir heiðursviðurkenningu Náttúrufræðistofnunar. Ljósm. Anette Th. Meier.

Heiðursviðurkenning Náttúrufræðistofnunar

Náttúrufræðistofnun hefur á undanförnum árum veitt heiðursviðurkenningar til einstaklinga fyrir ómetanlegt framlag þeirra til rannsókna og vöktunar á náttúru Íslands og stuðlað þannig að heildstæðri lýsingu Íslands.

Við val á einstaklingum hefur það verið haft að leiðarljósi að sá sem heiðraður er sé ekki starfsmaður Náttúrufræðistofnunar og að viðkomandi hafi lokið formlegum störfum.

Viðurkenningarnar hafa verið veittar á ársfundum stofnunarinnar.

Dr. Arnþór Garðarsson, prófessor emerítus við Háskóla Íslands, hlaut heiðursviðurkenningu árið 2007 fyrir ómetanlegt framlag til rannsókna og vöktunar á náttúru Íslands og frumkvöðlastarf í verndun íslensks votlendis.

Hálfdán Björnsson, bóndi á Kvískerjum og náttúrufræðingur af Guðs náð, hlaut heiðursviðurkenningu árið 2009 fyrir ómetanlegt framlag til rannsókna á lífríki Íslands og dyggan stuðning við starfsemi Náttúrufræðistofnunar um sex áratuga skeið.

Dr. Agnar Ingólfsson, prófessor emerítus við Háskóla Íslands, hlaut heiðursviðurkenningu árið 2012 fyrir ómetanlegt framlag sitt til fugla- og fjörurannsókna.

Heiðursviðurkenningu Náttúrufræðistofnunar fylgir útskorinn hrafn eftir Ragnhildi Magnúsdóttur, betur þekkt sem Ranka í Kotinu, en hrafninn er merki stofnunarinnar.

Gullmerki Náttúrufræðistofnunar

Gullmerki Náttúrufræðistofnunar er barmmerki með hrafninum, merki stofnunarinnar. Það er veitt einstaklingum sem hafa átt langt og farsælt starf á stofnuninni.

Handhafar gullmerkisins eru:

Bergþór Jóhannsson, 9. janúar 2004

Eyþór Einarsson, 9. janúar 2004

Matthildur Sigurðardóttir, 9. janúar 2004

Einar Gíslason, 16. október 2005

Hörður Kristinsson, 26. október 2007

Sveinn Jakobsson, 20. maí 2009

Helga Valdemarsson, 19. desember 2012

Kristbjörn Egilsson, 19. desember 2012




Þú ert hér: Forsíða > Stofnunin > Viðurkenningar

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Leit á vefsvæðinu


Stofnunin

  • Hlutverk
  • Skipulag
  • Upplýsingadeild
  • Vistfræðideild
  • Safna og flokkunarfræðideild
  • Akureyrarsetur
  • Stjórnsýsludeild
  • Ráðgjöf og þjónusta
  • Umsagnir
  • Innlent samstarf
  • Erlent samstarf
  • Stefnur
  • Viðurkenningar
  • Starfsmenn
  • Störf í boði

Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica