Vefsjár Náttúrufræðistofnunar Íslands
![]() |
| Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra opnar Plöntuvefsjána á ársfundi NÍ 6. april 2006. Ljósm. Kristbjörn Egilsson. |
Náttúrufræðistofnun Íslands hefur það langtímamarkmið að veita aðgang að gagnasöfnun stofnunarinnar á netinu og var opnun plöntuvefsjár á ársfundi stofnunarinnar 6. apríl 2006 stór áfangi að því marki.
Með plöntuvefsjánni er Náttúrufræðistofnun að taka í sína þjónustu nýjustu tækni í miðlun upplýsinga um netið þannig að notandinn getur nálgast traustar og áreiðanlegar upplýsingar um náttúru Íslands á myndrænan hátt.
Plöntuvefsjáin er fyrsti áfangi í rafrænni miðlun náttúrufarsgagna stofnunarinnar og í henni má finna ítarlegar upplýsingar um háplöntur, mosa, fléttur og sveppi, útbreiðslu þeirra og einnig staðreyndasíður sem gefa ítarlegar upplýsingar um sérhverja plöntutegund með plöntulýsingu, ljósmyndum, röðun tegundar innan flokkunarfræðinnar, upplýsingum um búsvæði og útbreiðslu og fróðleik um skaðsemi og nytjar plöntunnar.
Næsti áfangi er fuglavefsjá.
Plöntuvefsjáin er styrkt af Upplýsingasamfélaginu “Auðlindir í allra þágu 2004-2007”.
Umsjónarmaður með gagnagrunni plantna er Hörður Kristinsson
Umsjónarmaður plöntuvefsjár er María Harðardóttir



