STAÐREYNDASÍÐA
Í vefsjánni er hægt að kalla fram staðreyndasíður sem koma til með að fylgja hverri tegund háplantna og flestum tegundum mosa, fléttna, sveppa og þörunga. Í dag eru tiltækar um 1000 staðreyndasíður fyrir jafnmargar plöntutegundir. Staðreyndasíða inniheldur ítarlegar upplýsingar um sérhverja tegund með plöntulýsingu, ljósmyndum, röðun tegundar innan flokkunarfræði, upplýsingar um búsvæði, útbreiðslu og fróðleik um skaðsemi og nytjar plöntunnar. Þar að auki eru tenglar yfir á heimasíðu ni.is og á erlendar plöntuvefsíður þar sem hægt er að nálgast frekari fróðleik.

