Álka (Alca torda)

Útbreiðsla

Álkan verpur við norðanvert Atlantshaf og hér verpur hún á sömu slóðum og langvía og stuttnefja (sjá kort). Hún er staðfugl að mestu en eitthvað af fuglum leitar til Bretlandseyja og Norðursjávar á vetrum.

Stofnfjöldi

Álkustofninn var talinn 313.000 pör kringum 2007 (Arnþór Garðarsson o.fl., í prentun).

Válistaflokkun

NT (í yfirvofandi hættu)

ÍslandEvrópuválistiHeimsválisti
NT NT NT

Forsendur flokkunar

Tímabil sem mat miðast við (3 kynslóðir): 1985–2026Kynslóðalengd (IUCN): 13,6 ár

Álkum fækkaði um 17% milli talninga 1983–1986 og 2006–2008 eða sem samsvarar um 0,85% á ári (Arnþór Garðarsson o.fl., í prentun). Þessi breyting var þó ekki marktæk. Jafnframt breyttist varpdreifing verulega því svo virtist sem fuglar hafi fært sig frá stóru byggðinni í Látrabjargi til Grímseyjar og víðar. Endurtekin talning 2009 í langmikilvægustu byggðinni (Látrabjargi) sýndi verulega fækkun. Athuganir á sniðum í völdum björgum 2009–2017 sýna verulega aukningu í Látrabjargi og hæga aukningu í öðrum björgum (Yann Kolbeinsson og Þorkell Lindberg Þórarinsson 2017). Erfitt er að túlka þessar talningar vegna hinna miklu sveiflna sem komið hafa fram í Látrabjargi sem hýst hefur meirihluta stofnsins en til að allrar varfærni sé gætt er álka flokkuð sem tegund í yfirvofandi hættu (NT).

Viðmið IUCN

Stofn er talinn hafa minnkað um 20-25% á tímabili sem nemur þremur síðustu kynslóðum.

Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)

Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)

Eldri válistar

Válisti 2000: Álka var ekki í hættu (LC).

Global position

Þar sem meirihluti af álkum heimsins verpur á Íslandi, var tegundin sett á heimsválista og evrópskan válista sem tegund í yfirvofandi hættu vegna neikvæðrar stofnþróunar hér á landi (NT; BirdLife International 2015).

Verndun

Álka er friðuð samkvæmt lögum nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum.

Á takmörkuðum svæðum, þar sem eggja- eða ungataka álku taldist til hefðbundinna hlunninda 1. júlí 1994, skulu friðunarákvæði laga nr. 64/1994 ekki vera til fyrirstöðu því að veiðirétthafi megi nytja þau hlunnindi eftirleiðis.

Á takmörkuðum svæðum, þar sem veiði fullvaxinna álku í háf töldust til hlunninda 1. júlí 1994, skulu friðunarákvæði laga nr. 64/1994 ekki vera til fyrirstöðu því að veiðirétthafi megi nytja þau hlunnindi eftirleiðis. Veiðar þessar hefjist ekki fyrr en 1. júlí og ljúki eigi síðar en 15. ágúst.

Samkvæmt reglugerð 765/2017 er heimilt að veiða álku frá 1. september til 25. apríl.

Válisti

Alls eru 10 álkuvörp hér flokkuð sem alþjóðlega mikilvæg og allur stofninn verpur á mikilvægum fuglasvæðum (sjá töflu).

IBA viðmið – IBA criteria:

A4 ii: heimsstofn/global = 5.257 pör/pairs (Wetlands Int. 2016)

B1 ii: Ísland/Færeyjar/Bretlandseyjar/Frakkland/Þýskaland = 4.360 pör/pairs (Wetlands International 2016)

Töflur

Mikilvægar álkubyggðir á Íslandi – Important colonies of Alca torda in Iceland.*

Svæði AreaSvæðisnúmer Area codeÁrstími SeasonFjöldi (pör) Number (pairs)Ár Year% af íslenskum stofni % of Icelandic popul.Alþjóðlegt mikilvægi International importance
Krýsuvíkurberg  SF-V_1 B 4.127 2007 1,3 B2
Látrabjarg SF-V_13 B 160.968 2006–2007 51,3 A4ii, A4iii, B1ii, B2
Hælavíkurbjarg, Hornbjarg SF-V_35, 36 B 5.607 2007 1,8 A4ii, B1ii, B2**
Drangey SF-N_2 B 2.116 2007 0,7 B2
Grímsey út af Eyjafirði SF-N_8 B 114.796 2007 36,6 A4ii, A4iii, B1ii, B2
Rauðinúpur**** SF-N_12 B 1.006 2008 0,3 B2
Skoruvíkurbjarg SF-N_13 B 8.010 2007 2,6 A4ii, B1ii, B2
Langanesbjörg SF-N_14 B 4.021 2006, 2008 1,3 B2***
Ingólfshöfði SF-A_14 B 5.916 2007 1,9 A4ii, B1ii, B2
Vestmannaeyjar SF-S_4 B 2.843 2006 0,9 B2
Önnur mikilvæg svæði Other important areas   B 3.216   1,0  
Alls–Total     312.626   100  
*byggt á Arnþór Garðarsson o.fl. 2019. **70.000 pör 1985 ***15.400 pör 1985 ****Hluti af mikilvægu fuglasvæði, SFB-N_12 Melrakkaslétta – Belongs to the important bird area SFB-N_12 Melrakkaslétta

Myndir

Heimildir

Arnþór Garðarsson, Guðmundur A. Guðmundsson og Kristján Lilliendahl 2019. Svartfugl í íslenskum fuglabjörgum 2006–2008. Bliki 33: 35–46.

Birdlife International 2015. European red list of birds. Luxembourg: Official publication of the European communities. http://datazone.birdlife.org/userfiles/file/Species/erlob/EuropeanRedListOfBirds_June2015.pdf [skoðað 20.10.2016].

Wetlands International 2016. Waterbird Population Estimates. http://wpe.wetlands.org/search [skoðað 26. nóvember 2016].

Yann Kolbeinsson og Þorkell Lindberg Þórarinsson 2017. Vöktun bjargfuglastofna 2017. Framvinduskýrsla. Náttúrustofa Norðausturlands. NNA-1708.

Höfundur

Kristinn Haukur Skarphéðinsson maí 2017, júní 2018, október 2018

Biota

Tegund (Species)
Álka (Alca torda)

Samantekt á Ensku

Alca torda is a common breeding bird in Iceland with 313,000 pairs; ten colonies are of international importance (≥10,000 pairs) and all the population breeds within IBAs.

Icelandic Red list 2018: Near threatened (NT), uplisted from Least concern (LC) in 2000.