Óðinshani (Phalaropus lobatus)

Útbreiðsla

Óðinshani verpur umhverfis norðurhvel jarðar, þar á meðal í N-Evrópu. Óðinshani er alger farfugl og voru vetrarstöðvar óþekktar til skamms tíma en merkingar með dægurritum hafa sýnt að fuglar hér og í Skotlandi dveljast við strendur Perú og Ekvador á vetrum (Yann Kolbeinsson o.fl. 2015, óbirt heimild).

Stofnfjöldi

Óðinshani er allalgengur varpfugl í auðugu votlendi víða um land og hefur stofninn verið gróflega metinn 50.000 pör (Thorup 2006). Nýlegt mat er miklu lægra eða um 10.000 pör en jafnframt nokkrum annmörkum háð (Kristinn Haukur Skarphéðinsson o.fl. 2017). Það er samdóma álit manna að óðinshana hafi fækkað verulega hér síðan um 1960 en litlar tölulegar upplýsingar eru fyrir hendi.

Dreifing og þéttleiki eftir vistlendum: Útbreiðslukortið (sjá kort) endurspeglar líklega hlutfallslega dreifingu óðinshana þar sem votlendi á hásléttum Austurlands: Jökuldalsheiði, Fljótsdalsheiði og Vesturöræfi skora hátt, sem og Arnarvatnsheiði fyrir vestan. Þéttleiki óðinshana mælist illa því þeir eru víða hnappdreifðir og auk þess oft erfitt að túlka varpatferli þeirra. Úttektin gaf aðeins 10.400 pör, nokkuð jafnskipt neðan og ofan 300 m hæðarlínu og gætu um 28% þeirra orpið innan mikilvægra fuglasvæða (sjá töflu) (Kristinn Haukur Skarphéðinsson o.fl. 2017).

Válistaflokkun

DD (gögn vantar)

ÍslandEvrópuválistiHeimsválisti
DD LC LC

Forsendur flokkunar

Kynslóðalengd (IUCN): 4,9 árTímabil sem mat miðast við (3 kynslóðir): 2002–2017

Afar litlar tölulegar upplýsingar eru um íslenska óðinshana og þróun stofnsins. Þeir sem komnir eru yfir miðjan aldur telja flestir að óðinshönum hafi fækkað mikið og að hann sé víða miklu sjaldgæfari en áður. Enn sem komið er er ekki hægt að varpa frekara ljósi á þessar breytingar. Líklegt má telja að óðinshani gæti flokkast á válista en það veltur á stofnþróun á viðmiðunartímabili (sem nemur þremur kynslóðum), t.d. 2002–2017. Þar sem slíkar upplýsingar liggja ekki fyrir er óðinshani flokkaður sem DD (upplýsingar vantar).

Óðinshani var ekki á Válista 2000 en í ljósi þess að fyrir lá að honum hafði fækkað hefði verið réttara að flokka hann sem DD tegund.

Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)

Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)

Eldri válistar

Válisti 2000: Óðinshani var ekki í hættu (LC).

Verndun

Óðinshani er friðaður samkvæmt lögum nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum.

Válisti

Engin töluleg viðmið hafa verið tilgreind til að skilgreina mikilvæg fuglasvæði fyrir óðinshana (Heath og Evans 2000). Mörg hundruð og jafnvel þúsundir fugla safnast saman síðsumars á strandvötn hér og hvar um landið og eins á sjó. Langt fram eftir síðustu öld var t.d. gríðarleg mergð óðinshana á Mývatni á þessum árstíma.

IBA viðmið – IBA criteria:

A3: Arctic

Töflur

Reiknaður fjöldi óðinshana sem gæti orpið á þeim mikilvægu fuglasvæðum þar sem >1% íslenska stofnsins er að finna – Calculated number of breeding Phalaropus lobatus within important bird areas with >1% of the Icelandic population.*

Svæði AreaSvæðisnúmer Area codeÁrstími SeasonFjöldi (pör) Number (pairs)Ár Year% af íslenskum stofni % of Icelandic popul.Alþjóðlegt mikilvægi International importance
Borgarfjörður–Löngufjörur FG-V_10 B 175 2013 1,7  
Laxárdalsheiði VOT-V_3 B 185 2013 1,8  
Arnarvatnsheiði VOT-N_1 B 466 2013 4,5  
Víðidalstunguheiði–Blanda VOT-N_2 B 113 2013 1,1  
Skagi VOT-N_5 B 159 2013 1,5  
Melrakkaslétta  FG-N_4 B 163 2013 1,6  
Vatnajökulsþjóðgarður VOT-N_15 B 164 2013 1,6  
Jökuldalsheiði VOT-A_2 B 313 2013 3,0  
Úthérað VOT-A_3 B 115 2013 1,1  
Suðurlandsundirlendi VOT-S_3 B 714 2013 6,8  
Önnur mikilvæg svæði Other important areas   B 373 2013 3,6  
Alls–Total     2.940   28,2  
*byggt á Náttúrufræðistofnun Íslands, óbirt gögn

Myndir

Heimildir

Heath, M.F. og M. I. Evans, ritstj. 2000. Important Bird Areas in Europe: Priority sites for conservation. Volume I – Northern Europe. Cambridge: BirdLife International.

Kristinn Haukur Skarphéðinsson, Borgný Katrínardóttir, Guðmundur A. Guðmundsson og Svenja N.V. Auhage 2016. Mikilvæg fuglasvæði á Íslandi. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar Nr. 55. 295 s. rafræn útgáfa leiðrétt í nóvember 2017. http://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_55.pdf.

Thorup, O., ritstj. 2006. Breeding waders in Europe 2000. International Wader Studies 14. Thetford: International Wader Study Group. (Tölur yfir íslenska stofna byggjast á óbirtri samantekt: Guðmundur A. Guðmundsson 2002. – Estimates of breeding populations of Icelandic waders worked out for the „Breeding waders in Europe 2000” report).

Höfundur

Kristinn Haukur Skarphéðinsson maí 2017, júní 2018, október 2018

Biota

Tegund (Species)
Óðinshani (Phalaropus lobatus)

Samantekt á Ensku

The Phalaropus lobatus population in Iceland is estimated 10,400 pairs, based on measured densities in different habitat types and known and probable distribution; 28% may nest in IBAs designated for other species, but such areas are specifically designated for this species.

Icelandic Red list 2018: Data deficient (DD), uplisted from Least concern (LC) in 2000.