Spói (Numenius phaeopus)

Útbreiðsla

Spói verpur hér og hvar um norðanverða N-Ameríku, Evrópu og Asíu til Kyrrahafs. Hann er alger farfugl og fer til V-Afríku (Tómas G. Gunnarsson og Guðmundur A. Guðmundsson 2016), jafnvel í einum áfanga (Alves o.fl. 2016).

Stofnfjöldi

Spói er algengur varpfugl á Íslandi og hefur stofninn verið metinn gróflega 250.000 pör (Thorup 2006) sem er nánast það sama og nýjasta matið (256.000 pör, Kristinn Haukur Skarphéðinsson o.fl. 2017). Íslenskir spóar teljast til sérstakrar deilitegundar (Numenius phaeopus islandicus) sem verpur nær öll hér á landi. 

Dreifing og þéttleiki eftir vistlendum: Spói er algengur um allt land en mest er af honum á vesturhelmingi landsins (sjá kort). Hæsti þéttleiki spóa á láglendi er á graslendi 13,5 pör/km² og í mýravistum 12,2 pör/km² (Kristinn Haukur Skarphéðinsson o.fl. 2017). Á hálendi er mest um spóa í móavist 1 par/km². Reiknuð stofnstærð er 256.000 pör og af þeim eru 12.900 eða um 5% ofan 300 m hæðarlínu. Um 28% spóa eru innan mikilvægra fuglasvæða, flestir á Suðurlandsundirlendi, um 15% (sjá töflu).

Válistaflokkun

LC (ekki í hættu)

ÍslandEvrópuválistiHeimsválisti
LC LC LC

Forsendur flokkunar

Kynslóðalengd (IUCN): 9,1 ár Tímabil sem mat miðast við (3 kynslóðir):

Spói er mjög algengur hér á landi og verpur víða en stofnþróun er óþekkt. Kerfisbundnar mælingar á þéttleika mófugla eru  skammt á veg komnar (hófust árið 2006) og hafa aðeins verið teknar saman að litlum hluta. Ekki eru vísbendingar um að spóa hafi fækkað hér og athuganir á farleið og vetrarstöðvum bendar raunar til fjölgunar á seinni árum (van Roomen o.fl. 2015). Hann er því flokkaður sem tegund sem ekki er í hættu (LC).

Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)

Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)

Eldri válistar

Válisti 2000: Spói var ekki í hættu (LC).

Verndun

Spói er friðaður samkvæmt lögum nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum.

Válisti

Ólíkt mörgum vaðfuglum, safnast spóinn ekki í stóra hópa. Þar af leiðandi eru engir viðkomustaðir hér á landi sem teljast alþjóðlega mikilvægir fyrir spóa.

IBA viðmið – IBA criteria:

A4 i: Evrópa/V-Afríka = 10.365 fuglar/birds; 3.455 pör/pairs (Wetlands International 2016)

B1 i: A4 i

Töflur

Reiknaður fjöldi spóa sem gæti orpið á þeim mikilvægu fuglasvæðum þar sem >1% íslenska stofnsins er að finna – Calculated number of breeding Numenius phaeopus within important bird areas with >1% of the Icelandic population.*

Svæði AreaSvæðisnúmer Area codeÁrstími SeasonFjöldi (pör) Number (pairs)Ár Year% af íslenskum stofni % of Icelandic popul.Alþjóðlegt mikilvægi International importance
Borgarfjörður–Löngufjörur FG-V_10 B 4.181 2013 1,6  
Laxárdalsheiði VOT-V_3 B 3.764 2013 1,5  
Arnarvatnsheiði VOT-N_1 B 3.323 2013 1,3  
Skagi VOT-N_5 B 3.525 2013 1,4  
Melrakkaslétta  FG-N_4 B 7.566 2013 3,0  
Úthérað VOT-A_3 B 2.903 2013 1,1  
Suðurlandsundirlendi VOT-S_3 B 37.549 2013 14,7  
Önnur mikilvæg svæði Other important areas   B 8.431 2013 3,3  
Alls–Total     71.242   27,8  
*byggt á Náttúrufræðistofnun Íslands, óbirt gögn/unpubl. data

Myndir

Heimildir

Alves, J.A, M.P. Dias, V. Méndez, B. Katrínardóttir og T.G. Gunnarsson 2016. Very rapid long-distance sea crossing by a migratory bird. Sci. Rep. 6: 38154. https://doi.org/10.1038/srep38154.

Kristinn Haukur Skarphéðinsson, Borgný Katrínardóttir, Guðmundur A. Guðmundsson og Svenja N.V. Auhage 2016. Mikilvæg fuglasvæði á Íslandi. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar Nr. 55. 295 s. rafræn útgáfa leiðrétt í nóvember 2017. http://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_55.pdf.

Thorup, O., ritstj. 2006. Breeding waders in Europe 2000. International Wader Studies 14. Thetford: International Wader Study Group. (Tölur yfir íslenska stofna byggjast á óbirtri samantekt: Guðmundur A. Guðmundsson 2002. – Estimates of breeding populations of Icelandic waders worked out for the „Breeding waders in Europe 2000” report).

Tómas G. Gunnarsson og Guðmundur A. Guðmundsson 2016. Migration and non-breeding distribution of Icelandic Whimbrels Numenius phaeopus islandicus as revealed by ringing recoveries. Wader Study 123: 44–48.

van Roomen M., S. Nagy, R. Foppen, T. Dodman, G. Citegetse og A. Ndiaye 2015. Status of coastal waterbird populations in the East Atlantic Flyway. With special attention to flyway populations making use of the Wadden Sea. Leeuwarden, Hollandi: Programme Rich Wadden Sea; Nijmegen, Hollandi: Sovon; Wageningen, Hollandi: Wetlands International; Cambridge, Englandi: BirdLife International og Wilhelmshaven, Þýskalandi: Common Wadden Sea Secretariat. http://www.waddensea-secretariat.org/ sites/default/files/downloads/status_coastal_birds_eaf_2014_1.pdf [skoðað 15.5.2017].

Wetlands International 2016. Waterbird Population Estimates. http://wpe.wetlands.org/search [skoðað 26. nóvember 2016].

Höfundur

Kristinn Haukur Skarphéðinsson maí 2017, október 2018

Biota

Tegund (Species)
Spói (Numenius phaeopus)

Samantekt á Ensku

The Numenius phaeopuspopulation in Iceland is estimated 256,000 pairs, based on measured densities in different habitat types and known and probable distribution; 25% may nest in IBAs designated for other species, but such areas are specifically designated for this species.

Icelandic Red list 2018: Least concern (LC) as in 2000.