Útbreiðsla
Algeng á birki hér á landi (Hörður Kristinsson - www.floraislands.is).Vistgerðir
Vex eingöngu á trjáberki (Hörður Kristinsson - www.floraislands.is).Lýsing
Korkríla vex á trjáberki, þal skófarinnar vex að mestu inni í berkinum og er lítt sýnilegt að utan, aðeins hinar örsmáu, punktlaga askhirslur koma fram sem svartir dílar á berki trésins (Hörður Kristinsson - www.floraislands.is).
ÞaliðÞalið að mestu ósýnilegt þar sem það er inni í berkinum sem fléttan vex á (Foucard 2001).
AskhirslaAskhirslur kringlóttar til aflangar, svartar, niðurgrafnar með lítt áberandi kanti. Efsti hluti gróbeðsins dökkbrúnn eða brúnsvartur (Foucard 2001).
Útbreiðslukort
Höfundur
Starri Heiðmarsson 2007
Vex eingöngu á trjáberki (Hörður Kristinsson - www.floraislands.is).Biota
- Tegund (Species)
- Korkríla (Arthonia punctiformis)