Útbreiðsla
Nokkuð algeng flétta (Hörður Kristinsson - www.floraislands.is).Vistgerðir
Vex á jarðvegi og mosa í raka (Hörður Kristinsson - www.floraislands.is).Lýsing
Mosagroppa vex á jarðvegi og mosa í raka. Hún verður hlaupkennd og mjúk í raka en er skorpin og stökk viðkomu í þurrki. Hún er mjög óregluleg í formi, að hluta blaðkennd en mjög grópótt, götótt og með rifgörðum og strengjum (Hörður Kristinsson - www.floraislands.is).
ÞaliðÞal allt að nokkrir sentimetrar á breidd, í þurrki svartleit með blágrænum tón, oft gljáandi, í bleytu er það rauðleitt, skorið og óreglulega bleðlóttan kant og grófkornótt yfirborð (Foucard 2001).
AskhirslaAskhirslur 0,2-0,3 mm, krukkulaga, rauðbrúnar (Foucard 2001).
Útbreiðslukort
Höfundur
Starri Heiðmarsson 2007
Vex á jarðvegi og mosa í raka (Hörður Kristinsson - www.floraislands.is).Biota
- Tegund (Species)
- Mosagroppa (Lempholemma polyanthes)