Útbreiðsla
Finnst víða um land (Bergþór Jóhannsson 1995a).Vistgerðir
Vex í dýjum, við ár, læki, lindir og tjarnir, í mýrum og flóum og í rökum klettum (Bergþór Jóhannsson 1995a).Lýsing
Plöntur um 3-15 sm á hæð, vaxa oft í þéttum stórum bólstrum. Gróhirsla egglaga, álút og rákótt (Bergþór Jóhannsson 1995a).
GróliðurPlöntur uppréttar, 3-15 sm, grænar eða gulgrænar efst en brúnar eða svartleitar neðan til, vaxa oft í þéttum stórum bólstrum. Rætlingar brúnir. Oftast er þétt rætlingaló á neðri hluta stönguls og er oft aðeins efsti hluti sprota rætlingalaus. Blöð 1,2-2,1 mm, bein eða bogin, oftast með greinilegum langfellingum í blaðgrunni. Neðri hluti blaðs egglaga. Frá honum mjókka blöð nokkuð snögglega fram í yddan framhluta sem er oftast stuttur en getur verið nokkuð langur og frammjór. Blaðrönd tennt niður að blaðgrunni. Tennur flestar tvöfaldar. Rif nær fram í blaðenda eða fram úr blöðku (Bergþór Jóhannsson 1995a).
KynliðurPlöntur einkynja, alloft með gróhirslum. Stilkur 2-5 sm, brúnn, rauðbrúnn eða rauður. Gróhirsla egglaga eða næstum kúlulaga, óregluleg, álút, rákótt. Þurrar gróhirslur djúpskoróttar. Ytri kranstennur gulbrúnar eða rauðbrúnar, nokkuð grófvörtóttar framan til en fínvörtóttar neðan til. Innri krans gulleitur, vörtóttur (Bergþór Jóhannsson 1995a).
FrumurFrumur vörtóttar á neðra borði blaða. Frumur í framhluta blaðs striklaga, frumur í blaðgrunni ferhyrndar, styttri og breiðari (Bergþór Jóhannsson 1995a).
Útbreiðslukort
Höfundur
Bergþór Jóhannsson 2007
Vex í dýjum, við ár, læki, lindir og tjarnir, í mýrum og flóum og í rökum klettum (Bergþór Jóhannsson 1995a).Biota
- Tegund (Species)
- Dýjahnappur (Philonotis fontana)