Útbreiðsla
Finnst í öllum landshlutum en er síst að finna á Norðausturlandi (Bergþór Jóhannsson 1993).Vistgerðir
Vex á steinum í lækjum, ám og vötnum og í klettum við fossa, ár og læki (Bergþór Jóhannsson 1993).Lýsing
Plöntur 1-12 sm, kvíslgreindar, lifa í vatni. Gróhirslulok með langri, beinni trjónu (Bergþór Jóhannsson 1993).
GróliðurPlöntur 1-12 sm, kvíslgreindar, uppréttar, uppsveigðar eða liggja undan straumi í ám og lækjum. Greinar langar og liggja samsíða stöngli. Stuttar hliðargreinar fáar eða engar. Plöntur dökkgrænar, brúngrænar eða gulbrúnar efst en brúnar eða svartleitar neðan til. Blöð oftast um 2,5 mm, tungulaga eða egglensulaga, snubbótt og bogadregin að framan. Blaðendi oftast tenntur. Rif breitt, endar nokkuð fyrir neðan blaðenda, getur verið klofið í endann og ógreinilega kvíslótt í framhluta blaðs (Bergþór Jóhannsson 1993).
KynliðurOft með gróhirslum. Stilkur 3-10 mm, uppréttur, beinn, dökkbrúnn, rauður eða svartur, með slétt yfirborð. Þurr stilkur undinn til vinstri þegar horft er á hann frá hlið. Gróhirsla brún, upprétt, aflöng, sívöl, slétt. Gróhirslur nokkuð mislangar. Lok með langri, beinni trjónu. Hetta brún, topplaga, regluleg, sepótt að neðan, hrjúf ofan til. Kranstennur mjólensulaga, rauðar, brúnar eða rauðbrúnar, klofnar niður að eða niður fyrir miðju og oft götóttar neðan til, þéttvörtóttar (Bergþór Jóhannsson 1993).
FrumurBlaðka eitt frumulaga að þykkt (Bergþór Jóhannsson 1993).
Útbreiðslukort
Höfundur
Bergþór Jóhannsson 2007
Vex á steinum í lækjum, ám og vötnum og í klettum við fossa, ár og læki (Bergþór Jóhannsson 1993).Biota
- Tegund (Species)
- Lækjagambri (Racomitrium aciculare)