Útbreiðsla
Um land allt en er algengari á landræna svæðinu á Norðausturlandi en annars staðar (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Vistgerðir
Þurrt harðvelli og mólendi.Lýsing
Meðalstór stör (15–30 sm) með stuttu, gildu, hnapplaga axi í toppinn. Blómgast í júní.
BlaðVex í þéttum toppum. Blöðin grönn (1 mm) og snarprend, virðast sívöl en eru grópuð eða samanbrotin (Hörður Kristinsson 1998).
BlómStutt, gilt, hnapplaga ax, 6–8 mm langt og 6–7 mm breitt. Karlblómin mynda smátrjónu í enda axins en kvenblómin eru neðar, í gildari hlutanum. Axhlífar brúnar í miðju en himnukenndar til jaðranna. Hulstrin allbreið með langri trjónu. Tvö fræni (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningLíkist engri annarri íslenskri tegund.
Útbreiðslukort
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007
Þurrt harðvelli og mólendi.Biota
- Tegund (Species)
- Hnappstör (Carex capitata)