Útbreiðsla
Móastörin hefur eindregna landræna útbreiðslu á Íslandi. Hún er því mjög algeng um landið norðaustanvert, einkum inn til landsins. Hún kemur aðeins fyrir við innanvert Djúpið á Vestfjörðum en finnst varla utan þessara svæða. Móastörin er nokkuð harðgerð og finnst því oft nokkuð hátt til fjalla. Hæstu fundarstaðir eru í Hlíðarskál við Akureyri í 1050 m hæð, Möðruvallafjalli í Hörgárdal í 950 m og við Bleikálukvísl á Hofsafrétti í 850 m hæð (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Vistgerðir
Þurr móabörð og þúfnakollar.Lýsing
Fremur smávaxin stör (6–18 sm) með eitt, stutt, endastætt ax. Blómgast í maí–júní.
BlaðBlöðin í þéttum toppum, áberandi beygð í allar áttir, 1–2 mm breið, snarprend, grópuð neðan til en þrístrend í oddinn, oftast mikið eftir af visnuðum blaðleifum fyrri ára (Hörður Kristinsson 1998).
BlómEitt stutt (8–15 mm), endastætt ax, með karlblómum efst, kvenblómum neðar. Axhlífar himnukenndar, dökkbrúnar, breiðegglaga eða nær kringlóttar. Hulstrin sljóþrístrend, brún, með örstuttri trjónu, gljáandi taugaber. Frænin þrjú (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningLíkist helst dvergstör sem vex á svipuðum stöðum. Móastörin er grófari og með áberandi bognum blöðum og einu axi en dvergstörin hefur mörg.
Útbreiðslukort
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007
Þurr móabörð og þúfnakollar.Biota
- Tegund (Species)
- Móastör (Carex rupestris)