Útbreiðsla
Hann er algengur í útsveitum landsins og er þar oft ríkjandi á stórum svæðum en strjálli inn til landsins (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Vistgerðir
Súrar mýrar og deiglendi, einkum í útsveitum (Hörður Kristinsson 1998).Lýsing
Fremur lágvaxin tegund (8–20 sm) sem vex í þéttum toppum með ljósmóleitu axi á stöngulendum. Blómgast í maí–júní.
BlaðVex í þéttum toppum. Stöngullinn oft boginn, með 4–6 mm löngum, grænum blaðbroddi neðan til (Hörður Kristinsson 1998).
BlómAxið 4–5 mm, ljósmóleitt, fáblóma. Axhlífarnar nokkuð styttri en axið, með breiðum himnufaldi neðan til og snubbóttum, stundum grænleitum broddi efst. Þrír fræflar, frævan með þrem frænum (Hörður Kristinsson 1998).
Útbreiðslukort
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007
Súrar mýrar og deiglendi, einkum í útsveitum (Hörður Kristinsson 1998).Biota
- Tegund (Species)
- Mýrafinnungur (Trichophorum cespitosum)