Útbreiðsla
Mjög aleng um land allt á láglendi og upp í um 600 til 700 m hæð en ekki þar fyrir ofanVistgerðir
Móar, valllendi, kjarr, fjallshlíðar.Lýsing
Meðalhá til hávaxin hæra (15–50 sm) með nokkur blómhnoðu í hnapp. Blómgast í júní.
BlaðStráið sívalt. Stoðblaðið nær venjulega upp fyrir legglengstu blómhnoðun. Stofnblöðin 3–6 mm breið, flöt eða ofurlítið uppsveigð á jöðrum, oft meir eða minna rauðleit með löngum, hvítum hárum á röndunum, einkum neðst við blaðfótinn.
BlómBlómin eru mörg saman í 4–8 blómhnoðum á mislöngum leggjum. Blómhlífarblöðin sex, oddmjó, dökkbrún. Fræflar sex. Ein þrístrend fræva með einum stíl og þrískiptu fræni.
GreiningLíkist helst dökkhæru sem er með dekkri blómhnoðu sem eru oftast í þéttum hnapp, efsti hluti plöntunnar oft rauðari, stráið uppsveigt neðst.
Útbreiðslukort
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007
Móar, valllendi, kjarr, fjallshlíðar.Biota
- Tegund (Species)
- Kollhæra (Luzula multiflora)