Útbreiðsla
Það er algengt um norðanvert landið en sjaldséð á Suðurlandi austan Ölfusár (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Vistgerðir
Vel grónar hálfdeigjur, mýrajaðrar, rakir lækjarbakkar og gilhvammar (Hörður Kristinsson - floraislands.is og Hörður Kristinsson 1998)Lýsing
Fremur hávaxið sef (20–40 sm) með grönnum, sívölum stráum og löngu stoðblaði. Blómgast í júní–júlí.
BlaðStráin eru sívöl, fremur grönn, nálarlaga. Ljósgulbrúnt slíður neðst á stönglinum með örstuttum broddi í stað blöðku. Stoðblað mjög langt, í beinu framhaldi af stráinu (Hörður Kristinsson 1998).
BlómFá þéttstæð blómhnoðu í hnapp sem virðist vera á miðju stráinu eða neðar en í rauninni er það stoðblaðið sem blekkir. Blómhlífin sexblaða. Blómhlífarblöðin odddregin, ljósbrún eða grænleit. Fræflar sex með gulgrænum frjóhirslum. Frævan rauð með bleikt, þrískipt fræni (Hörður Kristinsson 1998).
AldinAldinin gljáandi, ljósbrún (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningLíkist helst hrossanál en þráðsefið þekkist á fíngerðari stráum og ljósari blómskipan, stoðblaðið álíka langt og stráið.
Útbreiðslukort
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007
Vel grónar hálfdeigjur, mýrajaðrar, rakir lækjarbakkar og gilhvammar (Hörður Kristinsson - floraislands.is og Hörður Kristinsson 1998)Biota
- Tegund (Species)
- Þráðsef (Juncus filiformis)