Litunarjafni (Diphasiastrum alpinum)

Útbreiðsla

Nokkuð algengur þar sem hæfilega snjóþungt er. Hann finnst ekki á snjóléttum svæðum (Hörður Kristinsson - floraislands.is).

Vistgerðir

Bollar og snjódældir, einnig innan um lyng og hrís, aðeins á snjóþungum svæðum.

Lýsing

Lágvaxin jurt (8–15 sm) með þéttblöðótta, marggreinótta stöngla og gróöxin ljósari en stönglarnir.

Blað

Langir (alt að 50 sm eða lengri), jarðlægir stönglar með uppréttum marggreindum greinum. Blöðin 3–4 mm á lengd, kúpt utan, oftast með sljóum oddi, aðlæg með aðsveigðum jöðrum svo að sprotarnir virðast grennri en á hinum jöfnunum (Hörður Kristinsson 1998).

Blóm

Gróhirslur í öxlum sérstakra gróblaða sem standa í gróöxum efst á uppréttum greinum. Gróblöðin flöt, oddmjó og breiðfætt, með óreglulega tenntum jaðri, hvert með eina gróhirslu á blaðöxlinni (Hörður Kristinsson 1998).

Greining

Hann þekkist frá öðrum íslenskum jöfnum á því hvað blöðin eru aðlæg að stönglinum.

Útbreiðslukort

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007

Bollar og snjódældir, einnig innan um lyng og hrís, aðeins á snjóþungum svæðum.

Biota

Tegund (Species)
Litunarjafni (Diphasiastrum alpinum)