Útbreiðsla
Fremur sjaldgæfur á landsvísu en nokkuð víða í ákveðnum landhlutum. Hann er algengastur á Vestfjörðum, Snæfellsnesi, við utanverðan Eyjafjörð og nyrst á Austfjörðum (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Vistgerðir
Bollar og snjódældir, einnig innan um lyng og hrís, aðeins á snjóþungum svæðum (Hörður Kristinsson 1998).Lýsing
Lágvaxin jurt (8–15 sm) með jarðlæga stöngla og uppréttar, marggreindar, þéttblöðóttar greinar.
BlaðJarðlægir stönglar sem eru oft 50 sm eða lengri, með uppréttar, marggreindar greinar. Blöðin 3–4 mm á lengd, kúpt utan, oftast með sljóum oddi, aðlæg með aðsveigðum jöðrum svo sprotarnir virðast grennri en á hinum jöfnunum (Hörður Kristinsson 1998).
BlómGróhirslur í öxlum sérstakra gróblaða sem standa í gróöxum efst á uppréttum greinum. Gróblöðin flöt, oddmjó og breiðfætt, með óreglulega tenntum jaðri, hvert með eina gróhirslu í blaðöxlinni (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningLíkist engri annarri íslenskri tegund.
Útbreiðslukort
Myndir
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007
Bollar og snjódældir, einnig innan um lyng og hrís, aðeins á snjóþungum svæðum (Hörður Kristinsson 1998).Biota
- Tegund (Species)
- Lyngjafni (Lycopodium annotinum)