Útbreiðsla
Sjaldgæf jurt sem aðeins finnst við jarðhita. Hún er einkum á tveim jarðhitasvæðum, öðru við Deildartungu í Borgarfirði og hinu í Árnessýslu (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Vistgerðir
Við laugar, hveri og meðfram heitum lækjum (Hörður Kristinsson 1998).Lýsing
Lágvaxin planta (5–15 sm) með stjörnustrengjótt blöð. Blómgast í júlí–ágúst.
BlaðBlöðin eru kringlótt, stjörnustrengjótt, grunnt bogtennt, hárlaus, 1–3 sm í þvermál. Blaðstilkarnir 5–15 sm langir, rísa upp af skriðulum jarðstöngli, festir í blöðkuna miðja, oftast hærðir rétt undir festingunni (Hörður Kristinsson 1998).
BlómBlómin örsmá, í litlum, kolllaga sveipum, fimmdeild, yfirsætin. Krónublöðin hvítleit, blómhnapparnir oft bleikleitir. Frævan tvíblaða með tveim stílum (Hörður Kristinsson 1998).
AldinTvíkleyft klofaldin (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningEngin önnur íslensk tegund er með stjörnustrengjótt blöð.
Útbreiðslukort
Myndir
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007
Við laugar, hveri og meðfram heitum lækjum (Hörður Kristinsson 1998).Biota
- Tegund (Species)
- Vatnsnafli (Hydrocotyle vulgaris)