Lýsing
Undafífill með blaðhvirfingu og eitt til þrjú stöngulblöð, oft greipfætt. Körfur frekar smáar með dökkar reifar, blómin gul.
BlaðPlöntur með blaðhvirfingu. Stöngulblöð eitt til þrjú, oft með greipfættum stilk. Kirtilhár á reifum löng, stundum mjög löng, dökk. Hnúður getur verið gulur, einkum á þeim styttri. Blöð græn eða gulleit, stundum eitthvað rauðleit eða bláleit, tígullaga, tígullensulaga eða egglensulaga. Neðstu blöð oft egglaga. Blöð oftast smátennt, stundum nokkuð hvasstennt, hærð báðum megin. Broddhár ekki áberandi gróf. Stundum er aðeins eitt stöngulblað og það getur verið lítið. Stöku sinnum vantar stöngulblöð alveg. Stílar á þurrkuðum plöntum oftast gulmórauðir, mórauðir eða svartir en stundum grágulir eða jafnvel svo til gulir (Bergþór Jóhannsson 2004).
BlómKörfur frekar smáar eða í meðallagi stórar. Kirtilhár áberandi mörg á körfustilkum. Reifar dökkar. Kirtilhár mest áberandi hárgerð á reifablöðum. Þar er oftast einnig einhver strjálingur af stjarnhárum og broddhárum. Reifablöð frammjó (Bergþór Jóhannsson 2004).
AldinFræ með svifhárakransi.
Útbreiðslukort
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007
Biota
- Tegund (Species)
- Stöðvarfífill (Hieracium stoedvarense)