Útbreiðsla
Hann er innfluttur en ílendur slæðingur sem vex hér og hvar í byggð.Vistgerðir
Meðfram vegum og við bæi, stundum á ruslahaugum.Lýsing
Stórvaxin jurt (30–70 sm) með margar, þéttblóma, purpurarauðar blómkörfur efst. Blómgast í ágúst– september.
BlaðVex í þéttum breiðum. Stönglar gáróttir, marggreinóttir með þyrnum. Laufblöðin fjaðurflipótt, greipfætt, 5–12 sm á lengd, fliparnir óreglulega tenntir og þyrnóttir. Neðra borð blaðanna gráhvítt, þéttlóhært (Hörður Kristinsson 1998).
BlómBlómin eru efst í mörgum, þéttblóma, purpurarauðum körfum sem hver um sig situr á bústnum, egglaga hnappi, sköruðum af dökkgráum reifablöðum með útstæðum, rauðleitum eða dökkum oddi. Krónurnar pípulaga, bognar (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningLíkist engri annarri íslenskri tegund, auðþekktur á þyrnóttum blöðum.
Útbreiðslukort
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007
Meðfram vegum og við bæi, stundum á ruslahaugum.Biota
- Tegund (Species)
- Þistill (Cirsium arvense)