Birki (Betula pubescens)

Útbreiðsla

Birki er algengasta skógartréð á Íslandi og myndar skóga og kjarr á þurrlendi upp að 400–450 m hæð yfir sjó. Áður fyrr var það útbreitt um allt láglendi landsins og myndaði víða samfellda skóga. Hæst vex birkið í um 550 m eða ríflega það, t.d. í Stórahvammi efst í Austurdal, Skagafirði og Fljótsgili við Skjálfandafljót (Hörður Kristinsson - floraislands.is).

Almennt

Frjótími:Blómgun getur hafist um miðjan maí en oftast fara frjókorn að dreifast í síðustu viku maí og nær frjódreifing hámarki öðru hvoru megin við mánaðamótin maí / júní. Vorveðrátta hefur mikil áhrif á það hvenær frjótíminn hefst, því hlýrri apríl þeim mun fyrr blómgast birkið. Frjótíminn stendur yfir í 2 – 3 vikur, háð veðri, ef kalt er og vætutíð getur tognað úr þeim tíma sem birkifrjó eru í lofti.

Víxlbinding: Víxlbinding er algeng meðal ættkvísla ættbálksins Fagales, t.d. elri, hesli, agnbeyki, beyki, eik og kastanía. Einnig er víxlbinding algeng við græn epli (fersk).

Skaðsemi

Ofnæmisviðbrögð: Birkifrjókorn geta valdið sterkum ofnæmisviðbrögðum.

Vistgerðir

Þurrlendi (Hörður Kristinsson 1998).

Lýsing

Runni eða tré sem getur verið allt frá 1–12 m hátt. Blómgast í maí–júní.

Blað

Börkurinn er ljósgrábrúnn eða rauðbrúnn og flysjast af í þynnum. Blöðin eru gróftennt, egglaga, fjaðurstrengjótt en odddregin, 2–4,5 sm löng og nokkuð stilklöng, bæði blöð og greinaendar ofurlítið loðin. Vaxtarlag mjög breytilegt eftir loftslagi, myndar oftast þétt og lágvaxið kjarr við ströndina og þar sem stormasamt er en hávaxnari tré inn til landsins (Hörður Kristinsson 1998).

Blóm

Blómin einkynja í reklum. Kvenreklarnir uppréttir í fyrstu, um 2 sm á lengd. Rekilhlífarnar þrísepóttar í endann. Blómin standa þrjú og þrjú saman, hvert með einni frævu og tveim stílum. Karlreklarnir lengri, hanga oftast niður. Karlblómin með tveim klofnum fræflum (Hörður Kristinsson 1998).

Aldin

Aldin birkisins er örsmá hneta með allbreiðum væng (Hörður Kristinsson 1998).

Afbrigði

Sums staðar má finna einn og einn kynblending birkis og fjalldrapa er nefnist skógviðarbróðir. Hann er tíðari um norðanvert landið þar sem mest er af fjalldrapa (Hörður Kristinsson 1998).

Greining

Það má greina birki frá fjalldrapa á því að hann er með mun minni og kringlóttari blöð (Hörður Kristinsson 1998).

Útbreiðslukort

Myndir

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007

Þurrlendi (Hörður Kristinsson 1998).

Biota

Tegund (Species)
Birki (Betula pubescens)