Útbreiðsla
Algengt á láglendi um allt land (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Vistgerðir
Þurrt valllendi, hólbrekkur og melar.Lýsing
Lágvaxin planta (8–20 sm), hærð, með blöðin í stofnhvirfingu. Blómstilkur blöðóttur og hvít blómin í klasa efst. Blómgast í maí–júní.
BlaðStöngullinn loðinn, blaðmargur, oft þéttblöðóttur. Stöngulblöðin loðin, oddbaugótt eða lensulaga, gróftennt, 8–20 mm á lengd, stofnblöðin heldur mjórri, í þéttri og reglulegri hvirfingu neðst. Oft koma blómbærar greinar út úr aðalstönglinum, einkum ef bitið hefur verið ofan af honum (Hörður Kristinsson 1998).
BlómBlómin eru í klasa, fjórdeild. Krónublöðin hvít, 3–4 mm á lengd. Bikarblöðin sporbaugótt, himnurend, græn eða fjólubláleit. Fræflar sex, ein fræva (Hörður Kristinsson 1998).
AldinAldinin mjóoddbaugóttir skálpar, 6–9 mm á lengd, 2–3 mm á breidd með skýrum miðstreng á hliðinni, stundum hærð (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningLíkist helst hagavorblómi en grávorblóm þekkist best frá því á þéttblöðóttum stöngli og blaðfleiri og þéttari stofnhvirfingum.
Útbreiðslukort
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007
Þurrt valllendi, hólbrekkur og melar.Biota
- Tegund (Species)
- Grávorblóm (Draba incana)