Útbreiðsla
Rauðkollur er fremur sjaldséð jurt á Íslandi, aðeins fundinn á nokkrum stöðum í eða nálægt byggð. Útbreiðsla hans bendir til að hann sé aðfluttur frá útlöndum en hefur áreiðanlega verið hér í nokkur hundruð ár. Í Glerárgili myndar hann samfellda breiðu sem er um 25–30 m í þvermál. Líklega er hvergi meira af honum en þar (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Vistgerðir
Gras- og blómlendi.Lýsing
Hávaxin jurt (30–80 sm) með hærð blöð og stöngla og flata, ljósfjólurauða blómkolla.
BlaðStöngullinn hærður. Blöð grágræn og loðin, hin neðstu oftast heil en stöngulblöð djúpflipótt eða skipt (Lid og Lid 2005).
BlómBlómin eru mörg þétt saman í kolli með stærri jaðarblómum til jaðranna. Flatur, líkist fremur körfu í lögun (Hörður Kristinsson 1998). Blómin ljósfjólurauð á litinn.
AldinAldinin eru hnetur með svifkransi (Stefán Stefánsson 1948).
GreiningHann minnir helst á stúfu en blöðin eru ólík, fjaðurskipt eða sepótt. Auk þess er kollurinn mun rauðari og flatur, líkist fremur körfu í lögun.
Válistaflokkun
NA (uppfyllir ekki forsendur mats)
Ísland | Heimsválisti |
---|---|
NA | NE |
Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)
Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)
Eldri válistar
Válisti 2008: Rauðkollur er á válista í hættuflokki VU (í yfirvofandi hættu).
Válisti 1996: Rauðkollur er á válista í hættuflokki VU (í yfirvofandi hættu).
Útbreiðslukort
Myndir
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018
Gras- og blómlendi.Biota
- Tegund (Species)
- Rauðkollur (Knautia arvensis)