Útbreiðsla
Víða til fjalla (Hörður Kristinsson 1998).Vistgerðir
Í snögggrónu landi, moldarflögum og raklendi, víða til fjalla (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Lýsing
Smávaxin jurt (2–5 sm) með mjóum blöðum og litlum, hvítum blómum. Blómgast í júní.
BlaðGræn jurt. Blöðin mjólensulaga eða striklaga, gagnstæð (Hörður Kristinsson 1998).
BlómBlómin 4–6 mm í þvermál, blómleggir alltaf stutthærðir. Krónublöðin hvít, á lengd við bikarblöðin eða aðeins lengri. Bikarblöðin snubbótt í endann, græn, þrítauga. Fræflar tíu, frævan oftast með þrem til fjórum stílum (Hörður Kristinsson 1998).
AldinKlofnar í þrjár til fjórar tennur við þroskun (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningLíkist helst melanóru. Fjallanóran er alveg græn, þekkist vel á bikarblöðunum sem eru ávöl í endann en oddhvöss á melanóru. Frá langkrækli þekkist fjallanóran á stærri blómum, lengri bikarblöðum og þrem stílum fremur en fimm.
Útbreiðslukort
Myndir
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007
Í snögggrónu landi, moldarflögum og raklendi, víða til fjalla (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Biota
- Tegund (Species)
- Fjallanóra (Minuartia biflora)