Flæðaskurfa (Spergularia salina)

Útbreiðsla

Mjög sjaldgæf tegund (Hörður Kristinsson 1998).

Vistgerðir

Sjávarfitjar og leirur.

Lýsing

Lágvaxin planta (3–15 sm) með snubbótt blöð, langa blómleggi og hvít til ljósrauð blóm.

Blað

Ein- eða tvíær með granna, ljósa rót. Blöð gagnstæð. Hárlaus eða lítið eitt kirtilhærð efst. Blöð snubbótt. Stutt stoðblað undir blómunum (Lid og Lid 2005).

Blóm

Blómleggir langir. Krónublöð hvít eða ljósrauð. Oftast fimm fræflar (Lid og Lid 2005).

Aldin

Fræhylki um 5 mm langt, lítið eitt lengra en bikarinn. Fræ oftst 0,8–1,5 mm breið, brún, oftast án en stundum með áberandi, breiðan himnukant (Lid og Lid 2005).

Greining

Líkist nokkuð skurfu en flæðaskurfa er smávaxnari og hefur þrjá stíla á frævunni.

Válistaflokkun

VU (tegund í nokkurri hættu)

ÍslandHeimsválisti
VU LC

Forsendur flokkunar

Flæðaskurfa flokkast sem tegund í nokkurri hættu þar sem vaxtarsvæði tegundarinnar er takmarkað, u.þ.b. 10 km2. Þekktir eru þrír fundarstaðir flæðaskurfu og fannst tegundin þar á fimmta áratug síðustu aldar. Nýleg þekking á stöðu stofnsins er lítil og vettvangsrannsóknir knýjandi.

Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)

Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)

Eldri válistar

Válisti 2008: Flæðaskurfa er á válista í hættuflokki EN (í hættu).

Válisti 1996: Flæðaskurfa er á válista í hættuflokki EN (í hættu).

Verndun

Flæðaskurfa er friðuð samkvæmt auglýsingu nr. 184/1978 um friðlýsingu nokkurra plöntutegunda.

Útbreiðslukort

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018

Sjávarfitjar og leirur.

Biota

Tegund (Species)
Flæðaskurfa (Spergularia salina)