Útbreiðsla
Algeng í hlýrri sveitum, annars staðar aðeins við jarðhita. Hana er einkum að finna á Suður- og Vesturlandi, einnig í Eyjafirði og Fljótsdalshéraði (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Vistgerðir
Bollar og grónar gilbrekkur, í kjarri og við laugar. Hitakær jurt (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Lýsing
Fremur lágvaxin jurt (8–20 sm) með hærð blöð og fjólublá blóm í aflöngum, sívölum klasa. Blómgast í júní–júlí.
BlómBlómin eru einsamhverf, stuttleggjuð, mörg saman í sívölum, keflislaga, um 2 sm löngum klasa. Krónan fjólublá, samblaða með hvelfdri, hjálmlaga efri vör. Bikarinn bjöllulaga, dökkrauðfjólublár, með fimm misbreiðum, oddmjóum, taugaberum tönnum. Fræflar fjórir, ein fræva (Hörður Kristinsson 1998).
AldinFerkleyft klofaldin (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningLíkist engri annarri íslenskri tegund.
Útbreiðslukort
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007
Bollar og grónar gilbrekkur, í kjarri og við laugar. Hitakær jurt (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Biota
- Tegund (Species)
- Blákolla (Prunella vulgaris)