Útbreiðsla
Algengastur sunnan- og vestanlands (Hörður Kristinsson 1998).Vistgerðir
Einkum í klettum eða brekkum móti sól (Hörður Kristinsson 1998).Lýsing
Meðalhá jurt (15–30 sm) með smáum gulgrænum blómum, stórum, handstrengjóttum blöðum og reglulega tenntum sepum.
BlaðOftast smávaxin og nokkuð fíngerð. Stöngull aðeins hærður neðst. Blöð kringlótt, þunn, skállaga, lítið eða ekkert gap við blaðstilkinn. Blaðsepar rúnnaðir, með V-laga skorur á milli sepanna, tennur smáar og spísslaga með smá hárum, nokkuð klólaga, ystu tennurnar minni en hinar (Lid og Lid 2005).
BlómBlómin í kvíslskúfum, fjórdeild, sjaldan fimmdeild, lítil, græn til gulgræn, án krónublaða. Bikarinn með utanbikarblöð. Fjórir fræflar. Eitt fræblað. Blómleggir langir (Lid og Lid 2005).
AldinAldinið er hneta (Lid og Lid 2005).
GreiningSilfurmaríustakkur hefur aðlæg hár á blaðstilkum líkt og hnoðamaríustakkur en er hárlaus á efra borði blöðkunnar eða aðeins aðhærður á blaðstrengjunum. Hann hefur sérlega granna og oftst rauðleita blómstöngla. Hann er einnig hitakærari en hinar tegundirnar.
Útbreiðslukort
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007
Einkum í klettum eða brekkum móti sól (Hörður Kristinsson 1998).Biota
- Tegund (Species)
- Silfurmaríustakkur (Alchemilla wichurae)