Vistgerðir
Vex eingöngu á sjávarflæðum (Hörður Kristinsson 1998).Lýsing
Mjög smávaxin jurt (2–5 sm) með fjöðruð, tennt blöð og gul, fimmdeild blóm (Lid og Lid 2005).
BlaðAðeins þrjú til fjögur smáblaðapör með þrjár til fimm snubbóttar tennur á hvorri hlið, nær hárlaus (Lid og Lid 2005).
BlómBlómleggir stuttir og hárlausir. Bikarblöð snubbótt (Lid og Lid 2005). Útbikarblöðin styttri en bikarblöðin, mjó og heilrennd (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningLíkist mjög tágamuru en skeljamura er smávaxnari og vex eingöngu á sjávarflæðum.
Útbreiðslukort
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007
Vex eingöngu á sjávarflæðum (Hörður Kristinsson 1998).Biota
- Tegund (Species)
- Skeljamura (Argentina egedii)